21. desember 2008

Bara grín....




23. nóvember 2008

Enginn tími til að tilla....

Ég held það sé óhætt að segja að það sé búið að vera nóg að gera hjá okkur hér á Axel Heides Gade. Verkefnavinna í skólanum, nóg að gera í félagslífinu og leikskólastarfinu og öðru tilfallandi. Annars eru allir hressir og kátir, allt gott að frétta héðan. Mér fannst tilvalið að smella inn hér einu bloggi í tilefni þess að mánuður er liðinn frá síðasta bloggi. Byrja hér á tveimur skondnum myndum ef yngri prinsessunni, hún er mjög ákveðin og fær foreldra sína til að samþykkja ýmislegt... eins og til dæmis að fá að sofna með tösku :)

Eflaust hafa nú flestir frétt að eldri prinsessan fékk þó nokkuð af gæludýrum um daginn, ekki reyndar sérlega skemmtileg gæludýr... en það fundust í henni "nokkrar" lýs. Þegar hún kom til okkar tókum við á móti henni með kambinn í annarri og lúsaolíu í hinni, var hún bara nokkuð sátt við meðferðina - enda leið henni eins og hún væri á snyrtistofu. Sú yngri vildi auðvitað fá að vera með, en þar sem í henni var engin lús fékk hún bara froðu í hárið sem var svo jafnóðum skolað úr með vatni :) Af gæludýrunum er þó það að frétta að ekki hefur sést til þeirra síðan þann dag sem meðferðin átti sér stað... fyrir utan þó nokkuð af verðandi afkvæmum sem voru klippt úr jafnóðum og þó fundust.

Var það ákveðið um daginn að færa Ástu Hlín inn í barnaherbergið, þar sem allur barnaskarinn mun nú hrjóta saman hver í sínu horni. Við hækkuðum upp rúmið hennar Láru Huldar og smelltum litlu krúttlegu rúmi þar undir. Ásta Hlín er að vonum mjög ánægð með rúmið sitt og "herbergið" sem myndaðist þarna undir rúminu.
Um síðustu helgi fórum við fjölskyldan í heimsókn til Fríðu Livar, sem var með Láru Huld á leikskóla. Hún hætti á leikskólanum í sumar og hafa þær ekkert sést síðan. Það voru mikil fagnaðarlæti ... en þó aðallega læti. Karl Jóhann var líka á svæðinu, en hann er ennþá með Láru Huld á leikskóla. Þetta var afskaplega góð heimsókn og tóku þau Fannar og Dóra, foreldrar Fríðu Livar, mjög vel á móti okkur.

Í gær fórum við svo á jólahátíð í leikskólanum hennar Láru Huldar. Þar var dansað og sungið, búnir til aðventukransar og föndrað. Jólasveinninn kom svo og gaf öllum krökkunum nammi, sem vakti mikla gleði. Þar sem gleymdist að taka myndar af þessum stóratburðum gerðist ég svo gróf að "stela" myndum af síðunni hennar Þórdísar... ég vona að þú fyrirgefir mér það :)
Já, að lokum er hægt að segja það að veturinn er mættur á svæðið - það snjóaði nefnilega í fyrsta skipti! Rétt eins og í fyrra var húsvörðurinn mættur klukkan ellefu um kvöldið til að skafa snjóinn af stéttunum.... Smelli inn einni "snjómynd" hér að lokum. Hafið það gott öll sömul og kærar þakkir fyrir allar afmæliskveðjurnar :)

24. október 2008

Ásta Hlín 2 ára

Í gær varð litla stúlkan mín 2 ára - já, það er ótrúlegt hvað tíminn líður hratt. Við ákváðum að hafa smá afmælis.. í tilefni dagsins - eina köku og gjafir frá systkinum og foreldrum. Hún var mjög glöð og ánægð með daginn. Setti hér inn smá myndbrot þar sem hún var að reyna að blása á kertin tvö, gekk svona misvel..... Svo verður afmælisveislan haldin á morgun :)

12. október 2008

myndablogg

Sælt verið fólkið, ég ákvað að smella inn nokkrum myndum hér -sér í lagi af stúlkunum, þar sem barnalandssíðurnar liggja niðri sökum kreppunnar. Það er allt gott héðan að frétta, kreppan farin að teygja sig hingað til Danmerkur - en við erum bara bjartsýn og vonum að opnist fyrir peningaflæði milli landanna sem allra fyrst. Þangað til reynum við að borða það sem til er í frystinum, ísskápnum og seljum flöskur en við ætlum þó ekki niður í Istedgade eða Skælbaksgade og selja eitthvað annað en flöskur!!
-
Þrátt fyrir kreppuna hefur nú ýmislegt gott á daga okkar drifið. Síðasta föstudag fórum við á leiksýningu hjá Láru Huld í Kulturhúsinu hér á bryggjunni. Hún var búin að vera að æfa leikrit alla daga vikunnar ásamt fleiri krökkum af leikskólunum í nágrenninu, afraksturinn var svo sýndur síðast liðinn föstudag.


Í gær var svo smá sprell hérna á bryggjunni, nánar tiltekið í götunni okkar. Það er verið að berjast fyrir því að fá kaffihús og e-ð fleira menningartengt hingað í götuna. Lára Huld smellti sér á hestbak... en Ásta Hlín vildi ekki sjá það!!!



Lára Huld skar út grasker í leikskólanum um daginn og við prófuðum að setja kerti inni í það áðan og kveikja á þeim - rosa flott :) Núna er nefnilega "Halloween" hér í Kaupmannahöfn, sem sést þá kannski helst í Tívolí - smellum okkur vonandi þangað fljótlega. Annars sendum við bara ykkur öllum okkar bestu kveðjur í þessari krepputíð, sem minnir mann óneitanlega á það að ekki er hægt að taka öllu sem sjálfsögðu í þessum heimi.

2. október 2008

.... 2 1/2 ári seinna

Litla stúlkan orðin aðeins stærri... en framburðurinn er ennþá dálítið skrýtinn :) Sá fær verðlaun sem þýðir textann rétt! Í verðlaun er gisting á hótel Helgu í Kaupmannahöfn...

29. september 2008

söngur fyrir svefninn

Það muna eflaust allir vel eftir þessu lagi, en kannski ekki í þessum flutningi :) Eins og heyrist á "framburði" dóttur minnar þá er hún rétt nýorðin þriggja (eða þliggja). Hún var með þetta lag á heilanum drjúgan part úr árinu 2006, en er sem betur fer löngu búin að gleyma því :) Langaði bara að henda þessu hér inn til gamans....
-

22. september 2008

Bekkjarmyndir

Þegar ég mætti í fyrsta tímann í taugasálfræði byrjaði kennarinn á því að segja að hann væri vanur að taka myndir af nemendum sínum... við héldum að þetta væri bara létt grín, þar sem það er nú ekki venjan að taka bekkjarmyndir hér í KU. En nei, nei,... í frímínútunum fóru allir út í garð, stilltu sér upp og gaurinn tók þessa líka fínu mynd af okkur :) Í næsta tíma áttum við að kjósa um hvaða mynd okkur þætti best, hann var búinn að prenta út fjórar mismunandi myndir sem allir áttu að kjósa um.... í þriðja tímanum fegnum við svo þessa dásamlegu mynd :)

15. september 2008

Torsdagsbar, matarboð og fleira skemmtilegt

Það er búið að vera nóg að gera hjá mér síðustu dagana, þó hef ég nú gefið mér góðan tíma til að slappa aðeins af inn á milli :) Á fimmtudaginn skellti ég mér á torsdagsbar í skólanum með Íslendingunum í sálfræðinni. Eitthvað var nú lítið af fólki fyrstu klukkutímana (enda mættum við klukkan 5.....). Hins vegar var alveg troðfullt hús og rífandi góð stemming þegar við yfirgáfum barinn um tvöleytið. Ég tók eitthvað af myndum en þær mistókust flest allar... líklega vegna lélegrar birtu :) Hins vegar tókust alveg tvær sem mér finnst nú nauðsynlegt að smella hér inn, enda eru þetta aðalpíurnar mínar - við höfum gengið saman í gegnum súrt og sætt síðan við byrjuð í KU - en þetta eru þær Hanna María og Auður - svaka píur :)
-

Stemmingin var kannski ekki alveg jafn góð daginn eftir og mættu menn misvel í föstudagstímann klukkan 10, en ég mætti þó og fór svo í vinnuna á eftir. Eitthvað er nú aldurinn farinn að segja til sín, því ég var steinsofnuð í sófanum klukkan hálftíu um kvöldið....
_
Á laugardeginum fórum við fjölskyldan í matarboð upp í Holte með Íslendingunum sem eru með Adda í landslagsarkítektúrnum..... alltaf að hitta e-a Íslendinga :) Það var mjög fínt, góður matur og skemmtilegt fólk þar á ferð. Það tók okkur svo ekki nema tvo klukkutíma að komast heim - rétt eins og við hefðum skroppið í matarboð frá Hvammstanga til Reykjavíkur! Ég sem stakk upp á því að við skyldum bara hjóla (það var reyndar áður en ég komst að því hvað þetta væri langt í burtu).
_
Í gær kíktum við svo í Þjóðminjasafnið hér í borg, ásamt Arnari Heimi, Auði og sonum. Það var mjög skemmtilegt og krakkarnir voru mjög glaðir, ég hugsa að við Addi förum aftur seinna - án barna :) Eftir það kíktum við aðeins í Tívolíið, þar var fullt af fólki og mjög góð stemming. Ég tók því miður engar myndir, hvorki í matarboðinu né í gær þannig að þið þurfið bara að ímynda ykkur hvernig þetta leit allt saman út.

10. september 2008

skólalífið...

Jæja, nú er skólinn byrjaður hjá okkur og fer bara vel af stað. Ég er í fullt af fögum og líst bara ágætlega á þetta allt saman. Við Íslendingarnir erum náttúrulega búin að rotta okkur saman og ætlum að hittast á morgun á skólabarnum. Það verður eflaust gaman, enda sérlega skemmtilegt lið þarna í sálfræðideildinni :) Annars er allt rosalega gott að frétta héðan af Axel Heides Gade. Addi lærir og lærir, eins og honum einum er lagið. Stelpurnar leika sér, hoppa, hlæja og gaurast saman fram og tilbaka. Lára Huld fer í "túr" tvisvar til þrisvar í viku í leikskólanum - Tívolí, dúkkuleikhús, bíó, leikhús, ýmsir garðar skoðaðir, hallir og söfn... á morgun fer hún svo í eplatínsluferð :) Ásta Hlín er alltaf að verða duglegri að tala og er mjög ánægð með nýja leikskólann sinn, þar sem hún hittir Ívar Franz vin sinn reglulega. Ég er búin að setja inn nýjar myndir inn á barnalandssíðurnar hjá krökkunum, hvet alla til að kíkja á þær og skrifa líka í gestabókina (Lára Huld hefur sérstaklega gaman að því)....
_
Takk fyrir mig og góða nótt
_

Skólinn minn :)

14. ágúst 2008

smá fréttir héðan...

Kannski það sé orðið tímabært að smella inn smá fréttum héðan frá Köben. Við komum hingað 20. júlí, eftir dásamlega dvöl á Íslandi, öll nema Lára Huld. Ég byrjaði að vinna strax daginn eftir og hefur það bara gengið mjög vel fyrir sig. Ég er ótrúlega dugleg að spila, perla og leika mér alveg eins og allir hinir krakkarnir. Þegar ég kem heim tekur svo svipað starf við - bara með mínum eigin börnum :) Við erum búin að vera ansi dugleg að slappa af og slaka á, ekki farið neitt út fyrir borgina - varla út fyrir hverfið. Lára Huld mín kemur svo loksins heim næsta laugardag. Það verður ekki langur tími sem við höfum öll börnin hér hjá okkur því Tómas flýgur til Íslands á mánudaginn og Snæbjörn flýgur til Skotlands daginn eftir.... Jæja, nóg af blaðri í bili. Fyrir þá sem ekki hafa tekið eftir því þá eru komnar inn nýjar myndir á barnalandið, endilega kíkja þangað.

4. júlí 2008

Ísland, fagra Ísland

Jæja, nú er ég loksins komin í almennilegt netsamband - fer lítið fyrir slíku í sveitinni. Ég sit hér inni á Café Sirop með yngri dóttur minni, hún var að vakna og ég er búin að nota tímann og hanga í tölvunni á meðan. Ég er búin að setja inn myndir á barnalandið, fyrir þá sem fylgjast með þar. Við erum búin að hafa það ansi huggulegt hér á Íslandi, eitt ættarmót, margar pottaferðir og fullt af grilli. Lára Huld er líka komin til landsins og við rákumst á hana í gær hér á Hvammstanga. Hún bauð okkur í heimsókn til langömmu sinnar í Svaninum, sem tók vel á móti okkur með heitu kakói með rjóma ásamt ástarpungum og nýbökuðum smákökum - alveg yndislegt. Myndin hér fyrir neðan er tekin af þeim systrum í stiganum í Svaninum með rabbarbara sem þær voru búnar að "plokka" úti í garði.

12. júní 2008

Umkringd karlmönnum

Það er óhætt að segja það að ég sé umkringd karlmönnum þessa dagana. Í gær komu til mín þrír og dvöldu hér um stund. Nú eru svo aðrir tveir hjá mér... enginn af þessum mönnum er þó minn maður. Þeir eru ekki heldur hér til að hitta mig eða dásama, nei... ekki svo gott. Hér er verið að skipta um ljós, setja höldur á skápa og mála svo eitthvað sé nefnt. Það er eiginlega ekki friður til að læra og því er ég farin... ætla bara að skella mér í bíó með Kristínu á þessa mynd:
-

7. júní 2008

Til hammó með ammó!!

Í dag á Addi minn afmæli, en hann er því miður ekki hér hjá mér heldur á Íslandi í faðmi fjölskyldunnar minnar. Hann er sem sagt í sveitinni og Tómas er með honum þar. Þótt ótrúlegt megi virðast þá var hann líka á Íslandi þegar ég átti afmæli og ég var bara hérna úti.... vonandi verðum við nú saman næst þegar við eigum afmæli. Smelli hérna inn einni mynd af myndarlegasta manninum, sem ég hlakka svooooo mikið til að hitta eftir ca. tvær vikur... lovjú beibí
-

6. júní 2008

Til Gunnhildar

Gunnhildur systir gaf mér 100 kr inneign í HM um daginn. Af því tilefni fórum við mægður áðan í Fisketorvet og keyptum þessa líka fínu kjóla. Þótt ótrúlegt megi virðast þá var það Lára Huld sem stakk upp á því að þessir kjólar yrðu keyptir, sem er kraftaverk... þar sem þeir eru ekki bleikir. Það var ekki hægt að bíða lengi með að fara í kjólana, því enduðum við inni á klósetti í Fisketorginu til að hafa fataskipti :)
-
Kærar þakkir Gunnhildur mín!
-


3. júní 2008

Kvöldið í kvöld

Já, það var svo sannarlega stuð á dætrum mínum í kvöld. Þær bjuggu sér til rúm úr teppum, púðum og koddum á gólfinu. Svo bjuggu þær sér til koju úr stofuborðinu, þar sem Ásta Hlín lá uppi á borðinu sem var umvafið teppum og púðum og Lára Huld lá undir borðinu. Eftir mikinn leik og mikið fjör var lesið og sungið fyrir svefninn og sofa þær systur vært núna, eins og sést á meðfylgjandi myndum. Góða nótt!
-

2. júní 2008

Fyrsti dagurinn í vinnunni

Ég byrjaði í nýju vinnunni í dag og gekk það bara ljómandi vel. Vinnustaðurinn heitir "Myretuen" sem þýðir mauraþúfan og er frístundaheimili fyrir 5-10 ára hressa krakka. Ég verð að vinna 12 tíma á viku sem stuðningsaðili fyrir dreng með Asperger heilkenni, fram að áramótum. Þetta leggst bara ágætlega í mig, það virðist vera nokkuð danskt yfirbragð á þessu... allir frekar léttir á því, lítið sem ekkert skipulag, enginn veit hvar krakkarnir eru þegar foreldrarnir koma að sækja o.s.frv. Vinnutíminn er frábær og passar vonandi vel við stundaskrána næsta haust, ég vinn bara frá 12-16 þrisvar í viku. Staðsetningin er líka frábær þar sem leikskólinn hennar Ástu Hlínar er við hliðina á frístundaheimilinu. Dagurinn var því bara góður, svolítið sveittur en annars mjög góður. Nú er klukkan 22:30 og úti er 20 stiga hiti og yndislegt veður, tilvalið að vera úti á svölum - vantar bara kallinn og ískalt hvítvínið..... Ætlaði ekki að setja neina mynd, en finnst það frekar leiðinlegt. Læt eina mynd fylgja með af dætrum mínum, hún var tekin hér fyrr í kvöld.

1. júní 2008

Dagurinn í dag

Frábært veður og frábærar stelpur... tók nokkrar myndir í dag. Fyrsta myndin er af Ástu Hlín á bílnum sínum og auðvitað með hjálminn! Næsta mynd er af Láru Huld í garði hér í nágrenninu, stálumst inn þar af því að það er svo góð aðstaða fyrir börn þar. Þriðja myndin er af Láru Huld í snú-snú með Höllu Rakel og Védísi Öglu, hún "hoppaði alveg upp í fimmtán". Síðasta myndin er svo af Ástu Hlín, en hún festist undir og á bakvið ofninn... var frekar hrædd og miður sín. Það þurfti ekki nema fimm snuð til að gleðja hana aftur :) Bestu kveðjur úr blíðunni.


31. maí 2008

Farvel og tak...

Núna erum við mæðgur bara einar í kotinu. Í þessum "skrifuðu orðum" er Addi í flugi á leið til Íslands. Þar ætlar hann að dvelja næstu sjö vikurnar, nánar tiltekið í Húnaþingi vestra. Við erum strax farnar að sakna hans mikið og hlökkum mikið til að hitta hann þegar við komum til Íslands. Set hér inn lítið myndskot af Láru Huld þar sem hún syngur lag, sem er mjög viðeigandi í þessum aðstæðum.... farvel og tak!

28. maí 2008

Merkisdagur

Í dag er eitt ár liðið frá því við fluttum hingað til Kaupmannahafnar. Þetta er búinn að vera yndislegur tími í alla staði og sjáum við ekki fram á flutninga héðan á næstunni. Það er ýmislegt búið að breytast á þessum tíma, t.d. garðurinn, húsin, íbúðin og fullt af byggingum hafa risið hér í kringum okkur. Sú sem einnig hefur breyst þó nokkuð á þessu eina ári er litla dóttir mín, hún Ásta Hlín. Set hér inn til gamans mynd af henni sem ég tók þann 28. maí 2007, í flugvélinni á leið til Kaupmannahafnar. Hin myndin er hins vegar tekin í dag, nákvæmlega ári síðar. Eitthvað hefur hún nú elst litla stúlkan, en er alltaf jafn ofboðslega sæt :)



16. maí 2008

Pínuponsa Pétursdóttir

Ég á pínulitla, fallega frænku sem mig langar svoooo mikið að kyssa og knúsa. Þetta er litla bróðurdóttur mín sem fæddist þann 10. maí s.l. Ég hlakka svo til að hitta hana, hvenær sem það verður - spurning um að reyna að sjá hana á Skype-inu... Annars allt gott að frétta, var að fá niðurstöður úr tveimur áföngum sem ég var í og náði þeim báðum :) Bið að heilsa í bili.


11. maí 2008

Det er dejligt...

Tími fyrir smá fréttir, ég skilaði verkefni á föstudaginn sem fjallaði um það hvernig feður aðlagast minni samverustundum með börnum sínum eftir skilnað. Þetta var gríðargott verkefni byggt á mjög svo vísindalegri rannsókn... tölum ekki meira um það. Ég ligg því yfir næsta verkefni núna sem ég þarf að skila þann 20. maí. Við skulum frekar segja að ég ætti að liggja yfir því en sökum veðurs er það mjög erfitt. Veðrið er svoleiðis búið að leika við okkur og við sjáum okkur ekki annað fært að en grilla og liggja léttklædd á bryggjunni í tilefni þess. Í gærkvöldi sátum við Addi úti á svölum og horfuðum á "Alla Leið" með kertaljós og súkkulaði, í ca. 19 stiga hita og kósýheitum. Núna ætlum við að skella okkur á karnival upp í Fælled Parken og njóta veðurblíðunnar. Læt fylgja með eina mynd af mér og Ástu Hlín sem er tekin hér á svölunum, Ástu Hlín fannst ekki ástæða til að vera í eins og einni spjör!! Hin myndin er tekin á bryggjunni en þangað fórum við á föstudaginn og grilluðum í góða veðrinu. Góðar stundir.