Sælt verið fólkið, ég ákvað að smella inn nokkrum myndum hér -sér í lagi af stúlkunum, þar sem barnalandssíðurnar liggja niðri sökum kreppunnar. Það er allt gott héðan að frétta, kreppan farin að teygja sig hingað til Danmerkur - en við erum bara bjartsýn og vonum að opnist fyrir peningaflæði milli landanna sem allra fyrst. Þangað til reynum við að borða það sem til er í frystinum, ísskápnum og seljum flöskur en við ætlum þó ekki niður í Istedgade eða Skælbaksgade og selja eitthvað annað en flöskur!!
-
Þrátt fyrir kreppuna hefur nú ýmislegt gott á daga okkar drifið. Síðasta föstudag fórum við á leiksýningu hjá Láru Huld í Kulturhúsinu hér á bryggjunni. Hún var búin að vera að æfa leikrit alla daga vikunnar ásamt fleiri krökkum af leikskólunum í nágrenninu, afraksturinn var svo sýndur síðast liðinn föstudag.
Lára Huld skar út grasker í leikskólanum um daginn og við prófuðum að setja kerti inni í það áðan og kveikja á þeim - rosa flott :) Núna er nefnilega "Halloween" hér í Kaupmannahöfn, sem sést þá kannski helst í Tívolí - smellum okkur vonandi þangað fljótlega. Annars sendum við bara ykkur öllum okkar bestu kveðjur í þessari krepputíð, sem minnir mann óneitanlega á það að ekki er hægt að taka öllu sem sjálfsögðu í þessum heimi.
