11. maí 2008

Det er dejligt...

Tími fyrir smá fréttir, ég skilaði verkefni á föstudaginn sem fjallaði um það hvernig feður aðlagast minni samverustundum með börnum sínum eftir skilnað. Þetta var gríðargott verkefni byggt á mjög svo vísindalegri rannsókn... tölum ekki meira um það. Ég ligg því yfir næsta verkefni núna sem ég þarf að skila þann 20. maí. Við skulum frekar segja að ég ætti að liggja yfir því en sökum veðurs er það mjög erfitt. Veðrið er svoleiðis búið að leika við okkur og við sjáum okkur ekki annað fært að en grilla og liggja léttklædd á bryggjunni í tilefni þess. Í gærkvöldi sátum við Addi úti á svölum og horfuðum á "Alla Leið" með kertaljós og súkkulaði, í ca. 19 stiga hita og kósýheitum. Núna ætlum við að skella okkur á karnival upp í Fælled Parken og njóta veðurblíðunnar. Læt fylgja með eina mynd af mér og Ástu Hlín sem er tekin hér á svölunum, Ástu Hlín fannst ekki ástæða til að vera í eins og einni spjör!! Hin myndin er tekin á bryggjunni en þangað fórum við á föstudaginn og grilluðum í góða veðrinu. Góðar stundir.

2 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Sælar elskurnar mínar. Mikið lítið þið öll vel út, svo brún og hress :) Hafið það sem allra best í sólinni.
kv. Gunnhildur

Nafnlaus sagði...

Sælar

voðalega hefur þetta verið huggó hjá ykkur á svölunum:)

til hamingju með nýju litlu frænkuna ykkar :)

venlig hilsen
Jóhanna