Kvöldið í kvöld
Já, það var svo sannarlega stuð á dætrum mínum í kvöld. Þær bjuggu sér til rúm úr teppum, púðum og koddum á gólfinu. Svo bjuggu þær sér til koju úr stofuborðinu, þar sem Ásta Hlín lá uppi á borðinu sem var umvafið teppum og púðum og Lára Huld lá undir borðinu. Eftir mikinn leik og mikið fjör var lesið og sungið fyrir svefninn og sofa þær systur vært núna, eins og sést á meðfylgjandi myndum. Góða nótt!
-
1 ummæli:
Skemmtilegar myndir, ekkert smá sætar..., farið nú að koma ykkur til Íslands!
Skrifa ummæli