27. apríl 2007

spenningur

Spenningurinn er þvílíkur að ég held ég sé komin hálfa leið út í huganum. Nú barst okkur leigusamningur ásamt greiðsluseðli.. þurfum að punga út ansi góðri upphæð til að byrja með. Byrjum svo að leigja þann 1. maí, þannig að ef einhvern vantar húsnæði á besta stað í Köben frá 1. - 28. maí .. endilega hafið samband (þurfið reyndar að hafa með ykkur dýnu og svefnpoka). Mér áskotnaðist svo þessi mynd sem tekin er af svölunum úr blokkinni sem við munum búa í, við verðum reyndar ekki alveg svona hátt uppi. Það er verið að gróðursetja og helluleggja í garðinum og stefnt er að því að klára það fyrir okkar komu :) Á milli blokkanna má sjá Amager Fælled sem er risastór garður eða bara hálfgerð sveit..

21. apríl 2007

litla stelpan mín...

Í gær varð litla stelpan mín 4 ára! Set hér myndir af henni sem allar eru teknar í apríl (frá 2003-2007). Það lítur út fyrir að hún hafi eitthvað elst stúlkan, en þó ekki mikið breyst.

19. apríl 2007

komin með íbúð :)

Íbúðarmálin standa ansi vel núna... allt í einu vorum við komin með þrjár íbúðir. Erum nú búin að velja úr herlegheitunum og munum búa í Heklahúsunum á Íslandsbryggju. Við fáum íbúðina 1. maí og ég sagði Adda að ég væri bara farin.. enda er ég ekkert í skóla eða vinnu eða.. við myndum svo bara sjást í lok maí. Endilega kíkið á http://www.heklahusene.dk

13. apríl 2007

afmælis...




Uppáhalds besta systir mín á afmæli í dag. Snótin er orðin 23 ára og verður fallegri með hverjum deginum :) Til hamingju með afmælið elsku Gunnhildur mín!

11. apríl 2007

engar fréttir eru fréttir

Já, mér fannst nú tímabært að skrifa eitthvað hér á síðuna. Allt gott að frétta frá Hvanneyrinni, höfðum það notalegt um páskana og dóttirin sú eldri skemmti sér konunglega með pabba sínum í Danmörku. Við erum búin að fá tvö tilboð um íbúð í Köben, báðar eru þær í Heklahúsunum á Íslandsbryggju... þetta hljómar ekki eins og í útlöndum. Það eru víst fleiri en við sem fengu þessi tilboð þannig að við bíðum bara spennt eftir svari.

Smelli hér inn einni mynd af hryssunni minni henni Freyju