29. maí 2007

Kaupmannahöfnin..

Hæ allir saman.. stalst inn á net hjá einhverjum hér í nágrenninu... vona að ég geti klárað að skrifa smá áður en það dettur út. Komum til Köben í gær, eftir brösulega ferð á Leifsstöð - ælandi barn, alltof sein innritun, 5 mín. í flug þegar við komumst loks í fríhöfnina og þá var bara hlaupið, það dundi í eyrunum... lokaútkall í flug til Kaupmannahafnar.... rosa gaman :)

Annars er Kaupmannahöfn dásamleg, veðrið frábært og við gengum bara um götur borgarinnar og skoðuðum hverfið okkar - sem er við fyrstu sýn alveg geggjað. Við setjum inn myndir við fyrsta tækifæri, eigum eftir að finna græjuna til að hlaða myndavélunum inn á tölvuna. Biðjum bara að heilsa í bili og verið nú dugleg að kommenta hjá mér... Helga

21. maí 2007

Eldur í Húnaþingi

Jæja, nú hefur Trausta mági mínum tekist að útbúa nýja og stórglæsilega heimasíðu fyrir unglistahátíðina Eld í Húnaþingi. Nýja slóðin er http://www.eldur.hunathing.is endilega kíkið á þetta... og svo þið sem verðið á Hvammstanga í sumar munið að leggja ykkar af mörkum því án ykkar væri þessi hátíð ekki til staðar!!!

17. maí 2007

flutningar og fleira

Skipulagshæfileikar mínir hafa komið í ljós síðustu daga. Ég las inni á heimasíðu Samskipa að við þyrftum að koma með kassana til þeirra daginn fyrir brottför, skipið fer á fimmtudegi þannig að við sáum það út að við þyrftum að mæta á miðvikudegi. Við leigðum okkur lokaða kerru hjá Shell og fylltum hana af dóti sem við keyrðum norður. Daginn eftir kláruðum við að pakka niður í kassana 30 sem við vorum búin að ákveða að senda með Samskipum. Allt í gríðarlegu skipulagi, klukkan eitt átti að byrja að setja kassana út í kerru, klæða stelpurnar.. og svo framvegis. Allt gekk eftir og svo ákvað ég að kíkja á netið og athuga hvert við þyrftum að fara með kassana.... þá les ég að við áttum að skila þeim í síðasta lagi þriðjudaginn fyrir brottför en ekki daginn fyrir brottför. Í gær var náttúrulega miðvikudagur en ekki þriðjudagur þannig að við vorum degi of seint á ferðinni... sem þýðir að dótið okkar verður ekki komið til Köben fyrr en 5. júní, viku seinna en við. Við höfum þá alla vega afsökun fyrir því að fara rosalega mikið út að borða og kaupa fullt af alls konar dóti :)

10. maí 2007

júró og kosningar


Það verður spennandi að sjá hvernig gengur í kvöld, vonandi rústum við þessu. Alltaf rígheldur maður í vonina um að vinna.. þó ekki væri nema bara að komast áfram í úrslitin. Það er eins með þetta og kosningarnar.. alltaf er maður jafn mikill kjáni að halda að fólkið í landinu sé búið að fá nóg af þessari blessuðu ríkisstjórn, en nei - það kýs þetta yfir sig aftur og aftur. Alltaf held ég þó í vonina, það hlýtur að koma að því að ég verði í vinningsliðinu. Ég spái því að þetta muni allt ganga þetta árið - það verða stjórnarskipti og við vinnum júró!! Ekki spurning..


7. maí 2007

bentu á þann sem þér þykir bestur

Nú styttist óðum í kosningar og þurfa menn að gera upp hug sinn fljótlega. Svona fyrir þá sem ekki geta ákveðið sig sjálfir bendi ég á þetta ... líka til gamans fyrir hina sem eru búnir að ákveða sig.