kúla ársins
Ákvað að smella inn nokkrum myndum og setja inn smá fréttir af okkur. Lífið leikur við okkur hér í Kaupmannahöfn og allt gengur mjög vel. Áður en við fluttum út vorum við búin að búa okkur undir það að geta ALDREI farið í sund, en það er útlit fyrir annað. Við fórum með alla krakkana í DGI-byen, sem er stórfín sundlaug hér í grenndinni. Þar vorum við í hvorki meira né minna en þrjá klukkutíma. Annars er lítið að frétta, við erum bara að slaka á með krökkunum okkar og njóta lífsins hér - milli þess sem opnaðir eru bankareikningar, sótt um leikskóla, húsaleigubætur og annað í þeim dúr.
Hér fyrir neðan má sjá bræðurnar í góðum leik, myndarlega manninn minn og gullfallegu dóttur okkar, sætustu stelpuna í tölvuleik, kúlu ársins og að lokum pizzu-veislu hjá "stóru" krökkunum í Heklahusene (Sunneva, Tómas, Snæbjörn, Gummi og Lára Huld).
