16. maí 2008

Pínuponsa Pétursdóttir

Ég á pínulitla, fallega frænku sem mig langar svoooo mikið að kyssa og knúsa. Þetta er litla bróðurdóttur mín sem fæddist þann 10. maí s.l. Ég hlakka svo til að hitta hana, hvenær sem það verður - spurning um að reyna að sjá hana á Skype-inu... Annars allt gott að frétta, var að fá niðurstöður úr tveimur áföngum sem ég var í og náði þeim báðum :) Bið að heilsa í bili.


2 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Til hamingju með litlu frænkuna... hún er voða myndarleg... ;)

Kveðja Þórdís Hlín

Nafnlaus sagði...

Til hamingju með litlu frænkuna, hún er algjör rúsína.
Bið að heilsa foreldrunum næst þegar þú heyrir í þeim :)
kv
Hófý