12. júní 2008

Umkringd karlmönnum

Það er óhætt að segja það að ég sé umkringd karlmönnum þessa dagana. Í gær komu til mín þrír og dvöldu hér um stund. Nú eru svo aðrir tveir hjá mér... enginn af þessum mönnum er þó minn maður. Þeir eru ekki heldur hér til að hitta mig eða dásama, nei... ekki svo gott. Hér er verið að skipta um ljós, setja höldur á skápa og mála svo eitthvað sé nefnt. Það er eiginlega ekki friður til að læra og því er ég farin... ætla bara að skella mér í bíó með Kristínu á þessa mynd:
-

5 ummæli:

Nafnlaus sagði...

He he... ég var farin að vera stressuð fyrir Adda hönd þegar ég las þetta :)
Góða skemmtun á þessari mynd.

Ellan sagði...

Þetta er mestaogbezta uppáhaldsmyndin mín...fannst ykkur hún ekki dásó? :)

Bústýran sagði...

Hún var dásó..víííí

Helga sagði...

algjörlega, ekki spurning. Eins og risalangur rosagóður sex in the city þáttur... tískusýning með tárum og hlátri, kjánahrolli og öllu öðru tilheyrandi :)

Nafnlaus sagði...

Hæ skvísípæ!
Getur þú komið í hvítvínshitting sunnudagskvöldið 13 júlí.??
Það er eini dagurinn sem Jo. Kemst held ég.. ?
Hafðu samb.:))
Kv. Sirrý.