myndablogg
Sælt verið fólkið, ég ákvað að smella inn nokkrum myndum hér -sér í lagi af stúlkunum, þar sem barnalandssíðurnar liggja niðri sökum kreppunnar. Það er allt gott héðan að frétta, kreppan farin að teygja sig hingað til Danmerkur - en við erum bara bjartsýn og vonum að opnist fyrir peningaflæði milli landanna sem allra fyrst. Þangað til reynum við að borða það sem til er í frystinum, ísskápnum og seljum flöskur en við ætlum þó ekki niður í Istedgade eða Skælbaksgade og selja eitthvað annað en flöskur!!
-
Þrátt fyrir kreppuna hefur nú ýmislegt gott á daga okkar drifið. Síðasta föstudag fórum við á leiksýningu hjá Láru Huld í Kulturhúsinu hér á bryggjunni. Hún var búin að vera að æfa leikrit alla daga vikunnar ásamt fleiri krökkum af leikskólunum í nágrenninu, afraksturinn var svo sýndur síðast liðinn föstudag.
Í gær var svo smá sprell hérna á bryggjunni, nánar tiltekið í götunni okkar. Það er verið að berjast fyrir því að fá kaffihús og e-ð fleira menningartengt hingað í götuna. Lára Huld smellti sér á hestbak... en Ásta Hlín vildi ekki sjá það!!!
Lára Huld skar út grasker í leikskólanum um daginn og við prófuðum að setja kerti inni í það áðan og kveikja á þeim - rosa flott :) Núna er nefnilega "Halloween" hér í Kaupmannahöfn, sem sést þá kannski helst í Tívolí - smellum okkur vonandi þangað fljótlega. Annars sendum við bara ykkur öllum okkar bestu kveðjur í þessari krepputíð, sem minnir mann óneitanlega á það að ekki er hægt að taka öllu sem sjálfsögðu í þessum heimi.

5 ummæli:
Gaman að sjá myndir af skottunum. Ekkert smá sætar í þessum peysum, hver er svona flinkur að prjóna?
Knús frá okkur öllum :)
já, þær eru sætar... og það voru þeir félagarnir Hennes og Mauritz sem prjónuðu þessar peysur!
Knús á línuna til ykkar líka :)
Hæ! Gaman að lesa.. En aðeins of langt síðan við höfum spjallað. Eigum við að mæla okkur mót á einhverjum tölvumiðlinum?
Ég ætlaði annars inn á barnaland til að skrifa í gestabókina fyrir Láru Huld, en ég komst ekki inn á síðuna, það kom bara blankó!! En alla vega, ég var mjög ánægð með danska framburðinn hjá henni.
Kærar kveðjur til ykkar allra!
Sælar. gaman að sjá myndir. ég segi það en og aftur vvááá hvað þær eru líkar þér þessar stúlkur:)
Ég er nú búin að hafa smá áhuggjur af ykkur þarna úti í kreppunni. eins og það er nú gott að vera í danmörku þá er örugglega ekkert gott að vera matar og auralaus þar. vonandi fer þetta nú að lagast þótt það sjái nú ekki fyrir endann í ósköpunum hér á klakanum.
knús á liðið
Jóhanna
Takk fyrir kveðjuna Jóhanna mín! Það er náttúrulega algjör dásemd að vera hérna úti, sérstaklega þegar hægt er að kaupa mat og borga húsaleigur... maður biður nú ekki um meira þessa dagana :)
Skrifa ummæli