26. desember 2009

Jólaundirbúningurinn og fleira

Við fjölskyldan erum búin að hafa í ýmsu að snúast undanfarnar vikur. Höfum við reynt að njóta jólaundirbúningsins til hins ýtrasta með ýmis konar föndri, bakstri og öðru tilheyrandi jólastússi. Lára Huld var svo dugleg að föndra jólakort handa nánustu ættingjum, sem við svo smelltum mynd í af Önnu Bergdísi. Hér fyrir neðan er Lára Huld að skrifa inn í jólakortin og myndin góða sem fékk að fylgja með kortinu.

Einnig höfum við verið svo heppin að fá til okkar fullt af börnum bæði í heimsókn og pössun. Það var nóg að gera hjá jólasveinunum eina nóttina, því þá voru hvorki meira né minna en sjö skór úti í glugga... börnin voru reyndar átta talsins, en Anna Bergdís setti ekki sinn skó út í glugga. Ef talið er frá vinstri til hægri á myndinni hér fyrir neðan má sjá Láru Huld, Sindra, Viktor, Ástu Hlín, Gumma, Sunnevu, Helenu og Önnu Bergdísi. Hér eru börnin að horfa á morgunsjónvarpið, ýmist á náttfötum eða nærfötum...

Systkinin þrjú fengu þó að vera öllu lengur en eina nótt, vorum við með sex börn á okkar framfæri í fjórar nætur og gekk það óskaplega vel. Þetta eru ótrúlega stilltir og skemmtilegir krakkar og höfðu dætur mínar sérlega gaman að dvöl þeirra hér á bæ. Hér fyrir neðan eru þau að spila tölvuleikinn "BUZZ", ótrúlega einbeitt - þrátt fyrir að hafa ekki hugmynd um hver svörin væru við spurningunum - enda vann Sindri fyrri leikinn og Ásta Hlín hinn....
Fleira merkilegt átti sér stað á Axel Heides Gade í þessum mánuði, til að mynda gekk hér framhjá mikil mótmælaganga - eitthvað í tengslum við loftlagsráðstefnuna sem haldin var hér í Köben. Hér sveimuðu þyrlur yfir og lögreglubílarnir voru nánast fleiri en blessað fólkið sem var að mótmælast.... Annað merkilegt var snjórinn, skyndilega byrjaði að snjóa og formlega náðum við Danir hvítum jólum :) í fyrsta skipti síðan 1995!!! Núna er hins vegar bara rigning og ekkert sem minnir mann á það að hér hafi nokkurn tímann verið snjór...
Svona í tilefni jólanna var eitthvað um bakstur, þó við höfum nú ekki haft rænu á því að mynda í hvert skipti sem bakað var þá steiktum við samt kleinur, ástarpunga og gerðum piparkökur með stelpunum. Við helltum okkur í laufabrauðsgerð með góðu fólki og tókum alla vega eina mynd af því, sem má sjá hér fyrir neðan. Við Addi vorum í miklum jólagír og fannst tilvalið að prófa að gera okkar fyrsta piparkökuhús. Afraksturinn af því má einnig sjá hér - við erum bara nokkuð sátt við húsið.... og ekki ólíklegt að þetta verði einhvern tímann gert aftur.
Óóóóó.... þær eru svo fagrar dætur mínar - þetta er bara svona montmynd, engin saga á bakvið hana - nema bara hvað þær eru yndislegar stelpurnar mínar :) Hér hægra megin er svo Lára Huld að smella stjörnunni á jólatréð, það var í hærra lagi og þurfti hún því aðstoð kraftakallsins á heimilinu til að ná alla leið upp :)

Litlu skotturnar voru svo bara tvær hjá okkur á aðfangadag, þær voru voðalega sætar og höfðum við það ótrúlega kósý og notalegt. Anna Bergdís svaf bara í vagninum úti á svölum á meðan ég eldaði matinn, svo var hámað í sig dýrindis jólamat (með tilheyrandi magapínu daginn eftir), pakkar teknir upp - kærar þakkir fyrir allar fínu gjafirnar :) Sú litla fór svo bara að sofa um hálfníu og sú stóra aðeins síðar. Þá gátum við gömlu bara sötrað á kaffinu og hámað í okkur konfektið, kíkt í bók og haft það huggulegt... allt eins og það á að vera. Á næsta ári geri ég svo ráð fyrir aðeins meira fjöri en þá verða öll dásamlegu börnin okkar hjá okkur - hlakka til þess :)

25. desember 2009

Jólin 2009




24. desember 2009

16. nóvember 2009

Heimsóknatíminn....

Við erum búin að átta okkur á því að best sé að eignast alla vega eitt barn á hverju ári - alla vega ef því fylgja alltaf jafn margar og góðar heimsóknir og við höfum fengið undanfarnar vikur. Gunnhildur systir kom fyrst og var hjá okkur í eina alltof stutta viku - hún hjálpaði okkur mikið með stelpurnar og reyndum við mikið að fá hana til að vera áfram sem au-pair hjá okkur :) Mamma og pabbi komu svo nokkrum dögum eftir að Gunnhildur fór - það var voða gaman að fá þau í heimsókn, enda ekki búin að koma hingað út í tæp tvö ár. Auðvitað reyndum við líka að fá þau sem au-pair, eða alla vega að kaupa sér búgarð á Jótlandi...

Svo komu strákarnir okkar með Óla afa, það var alveg dásamleg en alltof stutt heimsókn. Við reyndum að gera sem minnst svo tíminn liði eins hægt og mögulegt var. Strákarnir voru mjög ánægðir með nýjustu systurina - sem er svo sem ekkert furðulegt.


Örvar mágur minn kom svo við hjá okkur líka, en af einhverjum stórfurðulegum ástæðum gleymdist alveg að taka mynd af honum!!! Hann var voða hrifinn af litlu frænkunni, sem honum fannst þó vera frekar stór - sem er svo sem ekkert skrýtið þar sem hann á sjálfur eina ennþá minni :) Að lokum kom tengdó og var hjá okkur í tæpa viku. Hún var svo yndisleg að passa fyrir okkur, svo við hjónaleysin kæmumst í bíó. Þetta er búið að vera alveg frábært haust, okkur tókst að eignast frábæra stelpu og fáum í staðinn frábæra gesti :)

23. október 2009

Ásta Hlín 3 ára

Í tilefni dagsins læt ég fylgja með myndir af litlu stúlkunni minni. Sú fyrsta er tekin á Hvanneyri, þegar sú litla fékk fyrsta baðið sitt. Næsta mynd er tekin á leiksvæðinu á Íslandsbryggjunni, þegar Ásta Hlín var eins árs. Á þriðju myndinni má sjá afmælisbarnið taka upp pakka á tveggja ára afmælisdaginn sinn. Síðasta myndin var svo tekin núna áðan, þar sem litla stelpan mín prófar hjólið sem hún fékk í þriggja ára afmælisgjöf frá okkur Adda. Knús og kossar frá Ástu Hlín til ykkar allra :)


15. september 2009

Anna Bergdís og nýja síðan

Hér er Anna Bergdís Arnarsdóttir, sem kom í heiminn með miklum látum þann 3. september síðast liðinn. Með tilkomu litlu stúlkunnar ákvað ég að opna nýja sameiginlega systkinasíðu inni á barnalandinu. Slóðin inn á hana er http://5systkini.barnaland.is Njótið vel :)
_

3. september 2009

30. ágúst 2009

Vuggestue

Ólíkt síðustu færslu verður þessi tileinkuð henni Ástu Hlín. Ekki nóg með það að Lára Huld hafi verið að hætta á sínum leikskóla og byrja á frístundaheimili og grunnskóla, þá er Ásta Hlín hætt á vöggustofunni og byrjar í leikskólanum á morgun. Eftir tveggja ára dvöl á deildinni sinni, Mánanum, þá fer hún yfir í "børnhave" - sem er reyndar bara í næsta húsi. Deildin hennar heitir Græsrødderne og þar eru helmingi fleiri börn en á vöggustofunni, ca. 25 börn og 4 fullorðnir. Við erum svo heppin að tveir starfsmenn og tvær stelpur af gömlu deildinni hennar Ástu Hlínar eru á þeirri nýju. Hér fyrir neðan eru myndir sem við tókum þegar Ásta Hlín byrjaði á vöggustofunni, teknar í ágúst 2007.


Hér eru svo myndir af skvísunni sem teknar voru í ágúst á þessu ári, síðustu dagana sem hún var á vöggustofunni. Á fyrstu tveim er hún á leiðinni í dýragarðinn, á næstu var verið að leita að brómberjum og á þeirri síðustu er hún með félaga sínum, honum Valdemar.


Við vonum svo að næsta færsla verði tileinkuð þriðju stelpunni minni.... sem við bíðum öll spennt eftir að láti sjá sig :)

18. ágúst 2009

Ísland og skólinn

Þessi færsla verður tileinkuð frumburði mínum, henni Láru Huld. Hún gerði sér lítið fyrir og skrapp ein til Íslands og var þar í tæpan mánuð. Það þótti henni ekki mikið mál, enda fullt af frábæru fólki þar sem var tilbúið að dekra við hana. Hér koma nokkrar myndir sem teknar voru í sveitinni.

Hér er Sigrún Elísabet komin í sveitina, þær frænkur brölluðu ýmislegt saman og höfðu gaman að hvorri annarri.


Lára Huld var líka svo heppin að fá að hitta frændsystkini sín frá Hnífsdal. Þau komu í sveitina til ömmu og afa og voru þar í nokkra daga. Reyndar komst Þórólfur ekki, en Lena, Bjarni Pétur og Anna Marý komu. Þau léku sér vel saman og eru ótrúlega myndarleg öll sömul :)

Svo byrjaði allt í einu litla barnið mitt í grunnskóla, ótrúlegt hvað tíminn líður... ég sem er alltaf jafn ung - skil þetta ekki alveg! Alla vega, hér fyrir ofan er mynd af skvísunni á fyrsta skóladeginum. Nýkomin í skólann, hjólandi auðvitað :) Þarna er svo skólastjórinn, sem var mjög hress, með "handabangsa" sem hann spjallaði mikið við... Skólinn hennar heitir Skolen på Islands Brygge og bekkurinn 0.x. Í honum er 25 krakkar og tveir kennarar, þetta lítur allt voða vel út og skottan er mjög spennt.

Hér fyrir ofan bíður stúlkan spennt eftir að hún verði kölluð upp á "pall", þar sem öllum krökkunum úr bekknum var safnað saman áður en farið var inn í stofu.

Hér er hún svo komin inn í kennslustofuna, þar sem beið hennar fullt af flottum bókum, sem hún getur ekki beðið eftir að fá að skrifa í ... Annars er allt gott að frétta, Ásta Hlín byrjar í "børnehave" um mánaðarmótin og litla krílið hefur það gott inni í bumbunni. Að lokum, mamma - ekki gleyma að kvitta :)