31. desember 2007

árið

Kæra fjölskylda og vinir! Gleðilegt nýtt ár og kærar þakkir fyrir góðar stundir á liðnum árum.

25. desember 2007

jólin, jólin alls staðar

Aðfangadagskvöld var frábært í alla staði. Íslenskt lambalæri, danskur svínahamborgarahryggur og alls konar gúmmelað með. Heimalagað laufabrauð, malt og appelsín, grænar baunir.. sem sagt alveg eins og á Íslandi. Prinsessan stóð sig vel í pakkaupptektinni og var ofsalega ánægð með allar gjafirnar. Það heyrðist "vááá" í hvert skipti sem hún sá hvað kom út úr gjafapappírnum. Það þurfti náttúrulega að máta allt og prófa allt strax :) Kærar þakkir fyrir stelpuna og auðvitað okkur líka.










k
k
k
k
Hér að ofan til vinstri situr Ásta Hlín við jólatréð, hægra megin er hún komin í peysu sem amma Lilla gaf henni og er að leika sér með dót frá Gunnhildi frænku og Trausta. Fyrir neðan til vinstri er hún komin í peysu sem amma í sveitinni prjónaði á hana og er að bisa við að ná bókinni úr pakkanum líka. Hægra megin er hún komin í úlpu frá Óla afa og er að leika sér með síma sem amma og afi á Akureyðarfirði gáfu henni. Þess ber að geta að hún er í skóm frá Eydísi, Berglindi og fylgifiskum .. og var reyndar í þeim allt kvöldið :)

21. desember 2007

jólakveðja

Sökum mikilla anna hér á heimilinu ákváðum við að senda engin jólakort þetta árið. Okkur þykir samt mjög gaman að sjá hversu mörg kort bárust okkur og viljum þakka fyrir það með því að senda hér litla jólakveðju.
l
Við óskum fjölskyldu okkar og vinum gleðilegra jóla og farsælda á komandi ári. Takk fyrir samverustundir á líðandi ári, hlökkum til að sjá ykkur öll hress og kát á nýju ári. Skál!
l
Bestu kveðjur frá okkur í Kaupmannahöfn
K
Helga, Addi og Ásta Hlín
ps. setjum inn jólamynd af prinsessunni á eftir

4. desember 2007

SS.... svaka stress

Fannst við hæfi að skrifa nokkur orð hér niður þar sem nýr mánuðir er kominn. Það er rosalega mikið að gera hjá mér núna, ef ég hefði verið duglegri - skipulagðari og kannski pínu heppnari þá væru ljúfir tímar framundan. Planið var að klára tvær ritgerðir fyrir 3. des. og taka svo vikupróf. Þá gæti ég átt heilög jól og jólafrí... til 4. febrúar! En nei, ég var löt, óskipulögð og pínlítið óheppin vegna tíðra veikinda yngri dótturinnar. Af þeim sökum er ég núna í vikuprófinu góða og á eftir að skrifa báðar ritgerðirnar :( sem ég á að skila 2. janúar. Þannig að jólin verða ekki svo heilög nema í formi heilags náms. Ég held þá bara upp á jólin í janúar í staðinn :) Eins og ég sagði áðan er ég í vikuprófi núna, fékk sex prófspurningar afhentar í gær og á að skila svörum við þeim mánudaginn næsta. Ætla að svara einni á dag, vera ótrúlega dugleg og skipulögð og vonandi heppin líka! Hér fylgja með myndir af mér að læra og yngri dótturinni, lasinni.. hún vildi vera hjá mömmu sinni eins og sést á þesum myndum. Góðar stundir

Hvað er að gerast hér? Bókin komin á borðið og báðar steinsofandi.. Ekki skrýtið að móðirin sé orðin svolítið á eftir í náminu :)

20. nóvember 2007

afmælissöngurinn

Systir mín og mágur sungu fyrir mig afmælissönginn um daginn, ákvað að smella honum hér inn. Það varð þó að vera í formi "myndbands" þannig að þið munið bara að kveikja á hljóðinu :)

18. nóvember 2007

afmælisdagurinn...

var ansi góður :) Heimilið var fullt af börnum eins og vera ber þegar einhver á afmæli, Gummi og Sunneva voru sem sagt í heimsókn. Við mæðgur settum glassúr á köku og skreyttum með smarties - sú allra glæsilegast afmæliskaka sem um getur. Svo var afmælissöngurinn sunginn, blásið á kertið og klappað. Við vorum nú bara þrjár um kökuna, sem var svo sem ágætt þar sem hún var í smærri kantinum. Lára Huld spurði mig hvað ég væri gömul og ég bað hana nú að giska, hún hélt ég væri svona um það bil 14 :) já, maður ber aldurinn vel. Þá sagði ég henni að Benni Palli frændi hennar væri 14 og ég hlyti nú að vera töluvert eldri en hann.. þá sagði hún að ég væri ábyggilega bara svona 16... Svo var okkur boðið í kvöldmat til Kristínar og Tóta, þar var boðið upp á dýrindis lasagne og eina góða afmælisgjöf sem ekki verður opinberuð hér híhíhí. Þykir mér erindi þetta vera orðið fulllangt og kveð því í bili, kærar þakkir fyrir allar kveðjurnar.

15. nóvember 2007

brrrrrr.....

af hverju er ekki ennþá árið '92 og í tísku að vera í kraftgalla.. mikið svakalega var kalt að hjóla með stúlkuna á leikskólann í gær. Ég hjólaði eins hratt og ég gat til að fá örlitla velgju í kroppinn og á sama tíma mæti ég dönsku skvísunum..... í stuttum pilsum og sokkabuxum!!

12. nóvember 2007

veturinn er kominn

Í morgun þurfti ég að "skafa" snjó og klaka af hjólinu mínu... svo var hjólað MJÖG varlega með dótturina í leikskólann, hef nú aldrei prófað að hjóla í hálku fyrr. Mér tókst samt sem áður að komast áfallalaust í leikskólann og heim aftur. Annars stendur sólin sig vel í að bræða þetta litla sem var. Svo spáir 10 stiga hita um helgina þannig að ég veit ekki hversu lengi þessi "vetur" stendur yfir.
k
Allt er gott að frétta héðan, nú erum við Ásta Hlín bara einar í kotinu - Addi skrapp til Íslands og Lára Huld er hjá pabba sínum. Ég er nú svo lukkuleg að Kristín kíkti yfir til mín bæði kvöldin eftir að Addi fór, þannig að mér hefur ekki gefist tóm til að leiðast ennþá. Nú er planið að hjóla út í bókasafn og redda mér tveim skruddum sem ég þarf að lesa í Klínískri sálfræði.. vikuprófið verður í byrjun desember þannig að það er ekki seinna vænna :) Hef engar myndir í þetta skiptið þar sem myndavélin skrapp líka til Íslands - bið að heilsa.

5. nóvember 2007

cake a bake... eða bake a cake

Addi var að vinna verkefni í skólanum með félögunum Sigga Frigg og Kristjáni hinum danska. Þeir áttu m.a. að gera módel að garði.. í miðjum klíðum heyrðist úti í horni.. why don't we just bake a cake? Ég hló eins og bjáni, en áður en ég vissi af var ég búin að baka tvær skúffukökur. Siggi sá um hönnunina, en ég veitti honum faglega ráðgjöf í glassúrásetningu ásamt öðru. Þetta var hin besta skemmtun, þetta verður nú sjaldan gert í tengslum við mitt eigið nám. Þess ber að geta að eftir að þeir héldu fyrirlesturinn var nemendum og kennara boðið upp á kökuna, þannig að ég fékk ekki einu sinni að smakka... hér fyrir neðan eru myndir af ósköpunum.





29. október 2007

Muse og meira

Við Addi fórum um daginn á tónleika með eðalhljómsveitinni Muse. Þessir tónleikar voru algjörlega frábærir í alla staði, ótrúlega góð hljómsveit og frábærlega vel spilandi guttar.
-
Jæja, nú get ég klárað að skrifa hér... annars er allt gott að frétta héðan af bryggjunni. Við hjónaleysin lærum bara og lærum, ferlega gaman að vera bæði að læra. Nú er ég helst að stúdera klíníska sálfræði - lesa um geðklofa, þunglyndi, sjálfsmorð og annað álíka hressandi.
-
Svo væri nú ekki leiðinlegt ef það kæmi eins og eitt komment á hverja færslu.. svo ég viti að einhver fylgist með.
-
-
-
-



-
-
-
Stal þessari mynd af heimasíðu Sigga félaga, en hann kom einmitt með okkur á tónleikana - ásamt Kristínu vinkonu.

23. október 2007

tíminn líður..






Nú er litla stelpan mín hún Ásta Hlín orðin eins árs, það er ótrúlegt hvað tíminn líður hratt. Einhvern veginn finnst mér eins og hún sé bara nýkomin út úr bumbunni. Hér fyrir ofan eru myndir af systrunum Ástu Hlín og Láru Huld, teknar með árs millibili. Hér til hliðar má svo sjá mynd af skvísunni í afmælisveislunni sem haldin var á laugardaginn síðasta. Hún er hér í svaka fínum fötum sem Snæbjörn, Arnþór og Heiða gáfu henni.. og með bílinn sem hún fékk frá mömmunni og pabbanum. Fleiri myndir úr veislunni má sjá á síðunni hans Adda.



17. október 2007

bara gaman

Ég fékk ýmislegt í dag. Í fyrsta lagi ber að nefna þráðlaust net, sem er ágætt.. í öðru lagi fékk ég íslenskt símanúmer (eftir mánaðarbið) og það er frábært.. í þriðja lagi fékk ég eitt stykki Snæbjörn og það var lang best. Á föstudaginn koma svo Tómas, mamma og pabbi - það verður líka frábært. Þau verða svo öll hjá okkur fram á mánudag. Við ætlum að slaka á, njóta samvista þeirra allra, halda upp á 1 árs afmælið hennar Ástu Hlínar og kannski eitthvað fleira. Ég ætla núna að knúsa krakkana og kallinn - bið að heilsa öllum.
K
P.s. íslenska númerið er 49 605 49

6. október 2007

veðrið er líka dejligt núna...


Norðurland vestra: Norðvestan 15-23 m/s og slydda eða snjókoma fram að hádegi. Hiti 0 til 5 stig, en víða frost í nótt.
k
Kaupmannahöfn: Heiðskírt og 15 stiga hiti.
K
Það er margt sem maður saknar frá Íslandi, en veðrið er nú ekki eitt af því :) Allir velkomnir í heimsókn ef ykkur leiðist veðrið á klakanum.
k
k
Bestu kveðjur frá Köben

24. september 2007

veðrið er dejligt...

Bara að minna Íslendingana á það að hér er rosa gott veður, eða 20 stiga hiti og sól. Kíkti á textavarpið og sá spána fyrir norðurland vestra: Hiti 1 til 5 stig, en frystir í nótt. Já, ekki kvarta ég :)

19. september 2007

ellan hans salómons...

já, eða bara salmónella... fengum hringingu frá lækninum í gær og okkur tjáð það að litla stúlkan okkar væri með salmónellu!!! Hafið þið heyrt annað eins?? Ég fór sem sagt með hana til læknis í síðustu viku af því að bleyjuskiptingarnar voru orðnar fullmargar yfir daginn... við alltaf úti í Nettó að kaupa bleyjupakka. Ég tók sýni og setti í póstkassann á horninu (hversu kjánalegt sem það nú er... kúkur í póstkassa) alla vega fengum við niðurstöðurnar í gær. Ég þarf svo að taka annað sýni í dag og ef það er neikvætt má hún fara í leikskólann á mánudag!!! Við erum sem sagt búnar að vera heima síðan á fimmtudaginn í þar síðustu viku.. minnir mig. Við reynum að skiptast á að vera heima, þar sem við erum nú bæði í skóla og nóg að gera hjá öllum. Læt hér fylgja með eina mynd af salmónellunni litlu... þar sem hún setti sjálf spennu í "hárið" á sér.

11. september 2007

skólastelpa á ný :)

Það er ekki laust við að maður er hamingjusamur með nýju aðstæðurnar, komin í skóla LOKSINS... Ég fékk sem sagt loksins svar frá skólanum og byrjaði í síðustu viku. Er í þremur kúrsum (klinisk psykologi II, pædagogisk psykologi og udviklingspsykologi II). Ég mæti fjórum sinnum í viku, tvo klukkutíma í senn.. tæplega reyndar.. þannig að skólasókn er ekki mikil. Lesturinn er þeim mun meiri, enda virðist þetta snúast mest um það að lesa og lesa.. og kannski lesa svolítið meira. Þetta fer náttúrulega allt fram á dönsku og gengur mér misvel að skilja það sem fer fram í tímum. Ég var búin að taka myndir af skólanum til að smella inn hér, en myndavélin okkar týndist, eða var stolið þegar við fórum í strætó upp í Nørrebro.. finnst það líklegra. Þess vegna koma engar myndir með þessu bloggi. Læt þetta nægja í bili.

25. ágúst 2007

Vuggestue og børnehave

Nú hafa dæturnar verið í aðlögun í leikskólum sínum. Lára Huld er á leikskóla sem heitir Bryggen og er á Snorragötu. Ásta Hlín fékk inni Snorretoppen sem er einnig á Snorragötu, en er í bráðabirgða húsnæði á Sundholmsvej til 1. febrúar. Aðlögunin hefur gengið vonum framar. Sú yngri var mjög kát að komast loksins burt frá leiðinlegu foreldrunum, brosir þegar við förum og er brosandi þegar við komum. Það hefur ekki gengið alveg snuðrulaust fyrir sig með þá eldri, enda skilur hún ekkert sem sagt er og getur lítið tjáð sig. Hún er stundum hvumpin á morgnana þegar við förum en er svo hress og kát eftir daginn. Hún er búin að eignast vinkonu á leikskólanum sem heitir Fríða Liv, jú svei mér þá - hún er íslensk. Þær hafa hjálpað hvorri annarri mikið, enda skilja þær hvora aðra mjög vel.

Fyrsta myndin er tekin á leið í leikskólann, en við hjólum alltaf með skvísurnar. Næsta mynd er svo af Ástu Hlín í leikskólanum sínum.



Hér eru vinkonurnar Lára Huld og Fríða Liv, hér er stórt og flott hengirúm sem krakkarnir hafa mjög gaman að. Á myndinni hér til hægri er eitt af trjánum í leikskólanum hjá Láru Huld, í því hangir m.a. rólur, kaðlar, hengirúm, kaðalstigar svo eitthvað sé nefnt.



Í dag var haldin sumarhátíð í Bryggen, þar var meðal annars bakað brauð við óvenjulegar aðstæður - brauðið var svo borðað af bestu lyst.



Hér fyrir neðan má sjá þá yngri róla sér í hengirúmi og þá eldri sveifla sér í tré :) Báðar þessar myndir eru teknar á hátíðinni í leikskólanum hennar Láru Huldar.



Eins og sést er lífið dásamlegt hér í Köben. Hvað mig sjálfa varðar er ég enn að bíða eftir svari frá skólanum mínum... þó hann eigi nú að byrja þann 3. september. Danir eru búnir að finna það út að mér finnst ekkert skemmtilegra að gera en að bíða eftir svari um það hvað ég sé að fara að gera eftir já... rúmlega eina viku :) Gaman að þessu.... og svo allir duglegir að kommenta

17. ágúst 2007

smá samantekt

Jæja, það tókst. Loksins gef ég mér tíma til að setjast niður og smella smá fréttum og myndum hér á síðuna. Reyndar er ekki einvörðungu við mig að sakast þar sem Addi hefur einokað tölvuna vegna prófalesturs, en það er afstaðið. Það verður nú stiklað á stóru hér þar sem ýmislegt hefur verið brallað síðan síðast.

Mamma og Lena frænka komu í heimsókn og voru hér hjá okkur í fimm yndislega daga, hér fyrir neðan eru þær í smá verslunarferð á Strikinu. Á fimmtudeginum bættust Gunnhildur og Trausti í hópinn og gistu hjá okkur eina nótt. Myndin er tekin á bryggjunni þar sem heitt var í veðri og tilefni mikið til ísáts.



Um það bil viku eftir að mamma, Lena, Gunnhildur og Trausti yfirgáfu okkur fengum við nýja gesti. Það voru Hrafnhildur mágkona mín (systir Adda) og dóttir hennar, Amanda Eir. Hér fyrir neðan er mynd af þeirri síðarnefndu ásamt Ástu Hlín. Svo var haldið til Póllands....



Ástæðan fyrir þeirri ferð var brúðkaup Berglindar, mágkonu minnar (sem er líka systir hans Adda) og Mareks (sem er ekki systir hans Adda). Það var ýmislegt sem bar fyrir sjónir í Póllandi og óhætt að segja að þessi "sláttuvél" hafi gripið athygli manns á göngu okkar um Wejherowo. Brúðkaupið var afar fallegt, bleikt var þema dagsins eins og sést á myndinni hér fyrir neðan.



Þegar heim var komið tók svo "hversdagslífið" við, slappað af og slakað á. Hér eru nokkrar myndir af góðum degi á bryggjunni.




Svo kom stóra prinsessan loksins heim.. Á hægri myndinni er verið að spjalla í símann við Sunnevu vinkonu - en hún vildi endilega koma og leika við Láru Huld.

13. júlí 2007

Eivör..

Ég ætla á tónleika með þessari elsku annað kvöld. Það vill svo heppilega til að hér í Kaupmannahöfn er jazzhátíð mikil og Eivör heldur tónleika hér á Íslandsbryggjunni.

10. júlí 2007

Í beinni frá Íslandi....




8. júlí 2007

Jæja, ég var víst búin að lofa nýjum fréttum. Það er allt gott að frétta af okkur, nú eru Snæbjörn og Lára Huld farin til Íslands og við skilum Tómasi til Horsens á þriðjudaginn. Þetta verða mikil viðbrigði fyrir okkur að vera nánast barnlaus eftir þennan fjöruga tíma með alla krakkana. Nenni ekki að skrifa meira í bili, kemur kannski meira næst. Smelli hér inn nokkrum myndum úr ýmsum áttum. Fyrst eru feðgarnir í hinu sívinsæla Risk Star Wars, næstu þrjár myndir eru teknar úr Kongens Have þar sem við fórum í pikk nikk með grönnu grönnunum okkar, næstu fjórar myndir eru teknar í gönguferð okkar um bæinn - þar sem börnin sitja á nautum ýmist hauslausum eða ekki.. að lokum er mynd af afmælisbarninu, en hann Tómas okkar varð 9 ára þann 6. júlí s.l. Kveð í bili.