Celebrity Morph by MyHeritage
.... í algjöru djóki prófaði ég að gá hverjum Anna Bergdís líkist.... og það var sama konan!! Finnst þetta ansi skondið :)
.... í algjöru djóki prófaði ég að gá hverjum Anna Bergdís líkist.... og það var sama konan!! Finnst þetta ansi skondið :)
MyHeritage: Celebrity Morph - Family genealogy - Free family history
MyHeritage: Celebrity Morph - Drawing a family tree - Family pics
Við eyddum svo áramótunum hér heima á Axel Heides Gade með stúlkunum okkar, þær voru hressar að vanda og óhætt að segja að hér hafi verið heilmikið partý. Dregnir voru fram áramótahattar og ýlur. Ástu Hlín var hins vegar meinilla við bæði stjörnuljós og flugelda, hún hélt sig því sem mest innandyra.
Við töluðum við mömmu, pabba og Gunnhildi á msn-inu. Það var rosalega gaman, þarf að panta svoleiðis deit fljótlega aftur :) Ákveðið var að leyfa Ástu Hlín og Láru Huld að vaka þetta kvöld... sú stutta sofnaði hins vegar í sófanum um hálfellefu, með "flugelda" gleraugu í hendinni. Hún vaknaði svo aftur um miðnætti, þar sem sprengingarnar voru þvílíkar....
Annars er það helst í fréttum að ég gerðist bókunaróð og bókaði flug hægri vinstri. Fyrst fyrir strákana, þeir verða hjá okkur 7. -14. febrúar. Gunnhildur uppáhalds systir mín kemur 10. febrúar og fara strákarnir heim með henni. Svo var bara ákveðið að smella sér á fleiri tilboð og pantaði ég því flug fyrir alla fjölskylduna til Íslands 23. mars!!! Ég hlakka endalaust mikið til. Snæbjörn er að fara að fermast og við náum 14 ára afmælinu hans líka. Svo er þetta bara spurning um að knúsa alla, liggja í heitum pottum, borða íslenskan eðalmat, liggja meira í heitum pottum, þræða sundlaugarnar og kannski skreppa smá í heitan pott..... var ég kannski búin að segja það??? Hlakka alla vega til :)