31. desember 2007
25. desember 2007
jólin, jólin alls staðar
Aðfangadagskvöld var frábært í alla staði. Íslenskt lambalæri, danskur svínahamborgarahryggur og alls konar gúmmelað með. Heimalagað laufabrauð, malt og appelsín, grænar baunir.. sem sagt alveg eins og á Íslandi. Prinsessan stóð sig vel í pakkaupptektinni og var ofsalega ánægð með allar gjafirnar. Það heyrðist "vááá" í hvert skipti sem hún sá hvað kom út úr gjafapappírnum. Það þurfti náttúrulega að máta allt og prófa allt strax :) Kærar þakkir fyrir stelpuna og auðvitað okkur líka.


k
k
k
k
Hér að ofan til vinstri situr Ásta Hlín við jólatréð, hægra megin er hún komin í peysu sem amma Lilla gaf henni og er að leika sér með dót frá Gunnhildi frænku og Trausta. Fyrir neðan til vinstri er hún komin í peysu sem amma í sveitinni prjónaði á hana og er að bisa við að ná bókinni úr pakkanum líka. Hægra megin er hún komin í úlpu frá Óla afa og er að leika sér með síma sem amma og afi á Akureyðarfirði gáfu henni. Þess ber að geta að hún er í skóm frá Eydísi, Berglindi og fylgifiskum .. og var reyndar í þeim allt kvöldið :)
21. desember 2007
jólakveðja
Sökum mikilla anna hér á heimilinu ákváðum við að senda engin jólakort þetta árið. Okkur þykir samt mjög gaman að sjá hversu mörg kort bárust okkur og viljum þakka fyrir það með því að senda hér litla jólakveðju.
l
Við óskum fjölskyldu okkar og vinum gleðilegra jóla og farsælda á komandi ári. Takk fyrir samverustundir á líðandi ári, hlökkum til að sjá ykkur öll hress og kát á nýju ári. Skál!
l
Bestu kveðjur frá okkur í Kaupmannahöfn
K
Helga, Addi og Ásta Hlín
ps. setjum inn jólamynd af prinsessunni á eftir
4. desember 2007
SS.... svaka stress
Fannst við hæfi að skrifa nokkur orð hér niður þar sem nýr mánuðir er kominn. Það er rosalega mikið að gera hjá mér núna, ef ég hefði verið duglegri - skipulagðari og kannski pínu heppnari þá væru ljúfir tímar framundan. Planið var að klára tvær ritgerðir fyrir 3. des. og taka svo vikupróf. Þá gæti ég átt heilög jól og jólafrí... til 4. febrúar! En nei, ég var löt, óskipulögð og pínlítið óheppin vegna tíðra veikinda yngri dótturinnar. Af þeim sökum er ég núna í vikuprófinu góða og á eftir að skrifa báðar ritgerðirnar :( sem ég á að skila 2. janúar. Þannig að jólin verða ekki svo heilög nema í formi heilags náms. Ég held þá bara upp á jólin í janúar í staðinn :) Eins og ég sagði áðan er ég í vikuprófi núna, fékk sex prófspurningar afhentar í gær og á að skila svörum við þeim mánudaginn næsta. Ætla að svara einni á dag, vera ótrúlega dugleg og skipulögð og vonandi heppin líka! Hér fylgja með myndir af mér að læra og yngri dótturinni, lasinni.. hún vildi vera hjá mömmu sinni eins og sést á þesum myndum.
Góðar stundir
Hvað er að gerast hér? Bókin komin á borðið og báðar steinsofandi.. Ekki skrýtið að móðirin sé orðin svolítið á eftir í náminu :)
Gerast áskrifandi að:
Færslur (Atom)