1. júní 2008

Dagurinn í dag

Frábært veður og frábærar stelpur... tók nokkrar myndir í dag. Fyrsta myndin er af Ástu Hlín á bílnum sínum og auðvitað með hjálminn! Næsta mynd er af Láru Huld í garði hér í nágrenninu, stálumst inn þar af því að það er svo góð aðstaða fyrir börn þar. Þriðja myndin er af Láru Huld í snú-snú með Höllu Rakel og Védísi Öglu, hún "hoppaði alveg upp í fimmtán". Síðasta myndin er svo af Ástu Hlín, en hún festist undir og á bakvið ofninn... var frekar hrædd og miður sín. Það þurfti ekki nema fimm snuð til að gleðja hana aftur :) Bestu kveðjur úr blíðunni.


1 ummæli:

Arnar Olafsson sagði...

Gaman að sjá myndirnar, haltu áfram að vera svona dugleg að setja inn myndir, viltu:)