Afmælisbloggið
Þann 20. apríl síðast liðinn átti litla stelpan mín stórafmæli, orðin sex ára og byrjar bara í skóla í haust. Aldeilis spennandi tímar framundan, ég segi nú ekki annað. Við byrjuðum á því að halda eins konar "leikskólaafmæli" en þá komu allar stelpurnar á deildinni hennar hingað heim í fylgd leikskólakennaranna. Ferlega notalegt að sleppa alveg við að fá alla foreldrana með hehe... Stelpurnar byrjuðu á því að leika sér, svo var borðað, farið í pakkaleik og svo út að leika. Þetta gekk ótrúlega vel fyrir sig og var gaman fyrir Láru Huld að fá allar stelpurnar heim, svona áður en hún hættir í leikskólanum.
Á laugardaginn síðasta héldum við fjölskyldu/vina-afmælisbjóð heima hjá hinum foreldrunum. Á leiðinni rákumst við á þessar líka agalegu sætu gæsir, Ásta Hlín var alveg steinhissa :)
Í afmælinu var agalega ljúft og þangað komu margir góðir gestir. Á fyrstu myndinni eru krakkarnir í afmælinu, alla vega þeir sem voru mættir á slaginu og voru ekki sofandi þegar byrjað var að borða :) Á hinni myndinni er svo kærustuparið... já, ég á víst orðið tengdason! Þetta er Karl Jóhann og er hann með Láru Huld á leikskóla. Hafa þau verið perluvinir frá fyrstu kynnum og hefur vináttan verið að þróast í eitthvað alvarlegra undanfarið.... Það er reyndar gaman að segja frá því að þau hættu að vera kærustupar á smá tímabili, ég notaði þá tækifærið og spurði Láru Huld hvort það væri ekki betra að bíða þangað til hún yrði aðeins eldri með svona lagað. Jú, hún tók bara vel í það og sagði að kannski myndi hún bara finna einhvern þegar hún byrjaði í skólanum eða á frístundaheimilinu..... sem verður í ágúst!!! En í millitíðinni fóru ástarbréfin að berast á milli hennar og Karls Jóhanns og þau ákváðu bara að verða kærustupar aftur.... híhíhí
Eftir veisluna var hjólað heim á leið og þá kom í ljós að sú stutta var ansi þreytt eftir allt stuðið, steinsofnaði á hjólinu. Það hefur ekki gerst í ansi langan tíma og þótti okkur því ástæða til að smella einni mynd af stúlkunni :) Já, á meðan ég man þá þakka ég kærlega fyrir öll kommentin, það er dásamlegt að vita til þess að það er einhver sem kíkir ennþá inn á síðuna - og kommentar. Þó svo að mamma sé nú ekki enn búin að kommenta..... koma svo mútta tútta!!!
