24. október 2008

Ásta Hlín 2 ára

Í gær varð litla stúlkan mín 2 ára - já, það er ótrúlegt hvað tíminn líður hratt. Við ákváðum að hafa smá afmælis.. í tilefni dagsins - eina köku og gjafir frá systkinum og foreldrum. Hún var mjög glöð og ánægð með daginn. Setti hér inn smá myndbrot þar sem hún var að reyna að blása á kertin tvö, gekk svona misvel..... Svo verður afmælisveislan haldin á morgun :)

9 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Innilega til hamingju með daginn... Gaman að sjá þetta myndband. Bestu kveðjur,
Pétur, Ólöf og Sigrún Elísabet

Nafnlaus sagði...

Hæ Helga, innilega til hamingju með dóttur þína, hún er nú meira bjútíið:)
Bið að heilsa í Danaveldi.
Kv. Hrönn

Nafnlaus sagði...

Skemmtilegt myndband :)
kv. Gunnhildur

Bústýran sagði...

hehehe...dásamlegt myndband.
Takk fyrir okkur á laugardaginn:)

Berglind Rós sagði...

Æi hvað þetta er mikil krúsídúlla! Innilega til hamingju með dótturina og knúsaðu hana endilega frá mér. Bytheway, hvað er aftur lykilorðið á síðunum hjá krökkunum, ég á svo bátt með að muna það! :(
Annars er ágætt að frétta úr kreppuni hér á klakanum, ég á nóg eftir í ísskápnum þannig að engin hætta er á að ég svelti! ;)
knúsar

Nafnlaus sagði...

til lukku með daginn!
pv&co

Nafnlaus sagði...

Til hamingju með daginn :) Hringi í þig í kveld. kv. Gunnhildur

Nafnlaus sagði...

Mér finnst þetta svindl. Ég reyndi 18. nóv að setja comment hérna inn en mér tókst það ekki, það var eitthvað klikk á þessu... þannig að núna lítur út fyrir að ég hafi GLEYMT afmælinu þínu. En eins og þú VEIST Helga þá gleymi ég ekki afmælinu þínu... þannig að þó seint sé, TIL HAMINGJU MEÐ AFMÆLIÐ HELGA, fær maður ekki myndband af þér að blása á kertin á afmæliskökunni??

Kveðja frá Brill fjölskyldunni á Bakkanum...hehe

Nafnlaus sagði...

Innilega til hamingju með litlu skvísu.. hafið það nú gott :D

heyrumst síðar
kv Eyja og skvísur