22. september 2008

Bekkjarmyndir

Þegar ég mætti í fyrsta tímann í taugasálfræði byrjaði kennarinn á því að segja að hann væri vanur að taka myndir af nemendum sínum... við héldum að þetta væri bara létt grín, þar sem það er nú ekki venjan að taka bekkjarmyndir hér í KU. En nei, nei,... í frímínútunum fóru allir út í garð, stilltu sér upp og gaurinn tók þessa líka fínu mynd af okkur :) Í næsta tíma áttum við að kjósa um hvaða mynd okkur þætti best, hann var búinn að prenta út fjórar mismunandi myndir sem allir áttu að kjósa um.... í þriðja tímanum fegnum við svo þessa dásamlegu mynd :)

2 ummæli:

Aldís sagði...

Bekkurinn þinn er eins og hippa bekkur. Ég sé brún föt, hálsklúta, gallabuxur, blómaskyrtu, röndótt, indjánastellingar og flaksandi hár.

Helga sagði...

já, það er rétt - ég hafði ekkert pælt í því :)