12. júní 2008

Umkringd karlmönnum

Það er óhætt að segja það að ég sé umkringd karlmönnum þessa dagana. Í gær komu til mín þrír og dvöldu hér um stund. Nú eru svo aðrir tveir hjá mér... enginn af þessum mönnum er þó minn maður. Þeir eru ekki heldur hér til að hitta mig eða dásama, nei... ekki svo gott. Hér er verið að skipta um ljós, setja höldur á skápa og mála svo eitthvað sé nefnt. Það er eiginlega ekki friður til að læra og því er ég farin... ætla bara að skella mér í bíó með Kristínu á þessa mynd:
-

7. júní 2008

Til hammó með ammó!!

Í dag á Addi minn afmæli, en hann er því miður ekki hér hjá mér heldur á Íslandi í faðmi fjölskyldunnar minnar. Hann er sem sagt í sveitinni og Tómas er með honum þar. Þótt ótrúlegt megi virðast þá var hann líka á Íslandi þegar ég átti afmæli og ég var bara hérna úti.... vonandi verðum við nú saman næst þegar við eigum afmæli. Smelli hérna inn einni mynd af myndarlegasta manninum, sem ég hlakka svooooo mikið til að hitta eftir ca. tvær vikur... lovjú beibí
-

6. júní 2008

Til Gunnhildar

Gunnhildur systir gaf mér 100 kr inneign í HM um daginn. Af því tilefni fórum við mægður áðan í Fisketorvet og keyptum þessa líka fínu kjóla. Þótt ótrúlegt megi virðast þá var það Lára Huld sem stakk upp á því að þessir kjólar yrðu keyptir, sem er kraftaverk... þar sem þeir eru ekki bleikir. Það var ekki hægt að bíða lengi með að fara í kjólana, því enduðum við inni á klósetti í Fisketorginu til að hafa fataskipti :)
-
Kærar þakkir Gunnhildur mín!
-


3. júní 2008

Kvöldið í kvöld

Já, það var svo sannarlega stuð á dætrum mínum í kvöld. Þær bjuggu sér til rúm úr teppum, púðum og koddum á gólfinu. Svo bjuggu þær sér til koju úr stofuborðinu, þar sem Ásta Hlín lá uppi á borðinu sem var umvafið teppum og púðum og Lára Huld lá undir borðinu. Eftir mikinn leik og mikið fjör var lesið og sungið fyrir svefninn og sofa þær systur vært núna, eins og sést á meðfylgjandi myndum. Góða nótt!
-

2. júní 2008

Fyrsti dagurinn í vinnunni

Ég byrjaði í nýju vinnunni í dag og gekk það bara ljómandi vel. Vinnustaðurinn heitir "Myretuen" sem þýðir mauraþúfan og er frístundaheimili fyrir 5-10 ára hressa krakka. Ég verð að vinna 12 tíma á viku sem stuðningsaðili fyrir dreng með Asperger heilkenni, fram að áramótum. Þetta leggst bara ágætlega í mig, það virðist vera nokkuð danskt yfirbragð á þessu... allir frekar léttir á því, lítið sem ekkert skipulag, enginn veit hvar krakkarnir eru þegar foreldrarnir koma að sækja o.s.frv. Vinnutíminn er frábær og passar vonandi vel við stundaskrána næsta haust, ég vinn bara frá 12-16 þrisvar í viku. Staðsetningin er líka frábær þar sem leikskólinn hennar Ástu Hlínar er við hliðina á frístundaheimilinu. Dagurinn var því bara góður, svolítið sveittur en annars mjög góður. Nú er klukkan 22:30 og úti er 20 stiga hiti og yndislegt veður, tilvalið að vera úti á svölum - vantar bara kallinn og ískalt hvítvínið..... Ætlaði ekki að setja neina mynd, en finnst það frekar leiðinlegt. Læt eina mynd fylgja með af dætrum mínum, hún var tekin hér fyrr í kvöld.

1. júní 2008

Dagurinn í dag

Frábært veður og frábærar stelpur... tók nokkrar myndir í dag. Fyrsta myndin er af Ástu Hlín á bílnum sínum og auðvitað með hjálminn! Næsta mynd er af Láru Huld í garði hér í nágrenninu, stálumst inn þar af því að það er svo góð aðstaða fyrir börn þar. Þriðja myndin er af Láru Huld í snú-snú með Höllu Rakel og Védísi Öglu, hún "hoppaði alveg upp í fimmtán". Síðasta myndin er svo af Ástu Hlín, en hún festist undir og á bakvið ofninn... var frekar hrædd og miður sín. Það þurfti ekki nema fimm snuð til að gleðja hana aftur :) Bestu kveðjur úr blíðunni.


31. maí 2008

Farvel og tak...

Núna erum við mæðgur bara einar í kotinu. Í þessum "skrifuðu orðum" er Addi í flugi á leið til Íslands. Þar ætlar hann að dvelja næstu sjö vikurnar, nánar tiltekið í Húnaþingi vestra. Við erum strax farnar að sakna hans mikið og hlökkum mikið til að hitta hann þegar við komum til Íslands. Set hér inn lítið myndskot af Láru Huld þar sem hún syngur lag, sem er mjög viðeigandi í þessum aðstæðum.... farvel og tak!

28. maí 2008

Merkisdagur

Í dag er eitt ár liðið frá því við fluttum hingað til Kaupmannahafnar. Þetta er búinn að vera yndislegur tími í alla staði og sjáum við ekki fram á flutninga héðan á næstunni. Það er ýmislegt búið að breytast á þessum tíma, t.d. garðurinn, húsin, íbúðin og fullt af byggingum hafa risið hér í kringum okkur. Sú sem einnig hefur breyst þó nokkuð á þessu eina ári er litla dóttir mín, hún Ásta Hlín. Set hér inn til gamans mynd af henni sem ég tók þann 28. maí 2007, í flugvélinni á leið til Kaupmannahafnar. Hin myndin er hins vegar tekin í dag, nákvæmlega ári síðar. Eitthvað hefur hún nú elst litla stúlkan, en er alltaf jafn ofboðslega sæt :)



16. maí 2008

Pínuponsa Pétursdóttir

Ég á pínulitla, fallega frænku sem mig langar svoooo mikið að kyssa og knúsa. Þetta er litla bróðurdóttur mín sem fæddist þann 10. maí s.l. Ég hlakka svo til að hitta hana, hvenær sem það verður - spurning um að reyna að sjá hana á Skype-inu... Annars allt gott að frétta, var að fá niðurstöður úr tveimur áföngum sem ég var í og náði þeim báðum :) Bið að heilsa í bili.


11. maí 2008

Det er dejligt...

Tími fyrir smá fréttir, ég skilaði verkefni á föstudaginn sem fjallaði um það hvernig feður aðlagast minni samverustundum með börnum sínum eftir skilnað. Þetta var gríðargott verkefni byggt á mjög svo vísindalegri rannsókn... tölum ekki meira um það. Ég ligg því yfir næsta verkefni núna sem ég þarf að skila þann 20. maí. Við skulum frekar segja að ég ætti að liggja yfir því en sökum veðurs er það mjög erfitt. Veðrið er svoleiðis búið að leika við okkur og við sjáum okkur ekki annað fært að en grilla og liggja léttklædd á bryggjunni í tilefni þess. Í gærkvöldi sátum við Addi úti á svölum og horfuðum á "Alla Leið" með kertaljós og súkkulaði, í ca. 19 stiga hita og kósýheitum. Núna ætlum við að skella okkur á karnival upp í Fælled Parken og njóta veðurblíðunnar. Læt fylgja með eina mynd af mér og Ástu Hlín sem er tekin hér á svölunum, Ástu Hlín fannst ekki ástæða til að vera í eins og einni spjör!! Hin myndin er tekin á bryggjunni en þangað fórum við á föstudaginn og grilluðum í góða veðrinu. Góðar stundir.

2. maí 2008

Gleðilegt veður :)

Veðrið í Köben næstu daga.... ég kvarta ekki!

24. apríl 2008

Gleðilegt sumar

Gleðilegt sumar allir saman! Það er svo sannarlega komið sumar hér í Kaupmannahöfn, í dag var t.a.m. 16 stiga hiti og glampandi sól. Pétur bróðir kom óvænt í heimsókn og Lára Huld naut heldur betur góðs af því, hann kenndi henni nefnilega að hjóla! Set hér myndband af skottunni minni (sem skyndilega er orðin svo stór) hjóla eins og vindurinn.

21. apríl 2008

Afmælismyndband

20. apríl 2008

Afmælismyndavesenis....

Nú er litla stelpan mín hún Lára Huld orðin fimm ára, ótrúlegt hvað tíminn líður hratt. Við héldum veislu í dag þar sem var mikið etið, hlegið og sprellað. Dóttirin fékk hina ýmsu fararskjóta í afmælisgjöf, t.a.m. hjól, línuskauta og vængi.... Ég ætlaði að vera sérstaklega dugleg að setja inn myndir af henni, í ljósi þess að enginn úr fjölskyldunni mætti í veisluna. Því miður er tölvan með einhverja stæla við mig þannig að ég geti ekki sett inn myndir núna, en vonandi verður þetta allt í lagi á morgun. Þið fylgist vonandi öll spennt með??

17. mars 2008

Systkinin og pikknikk

Gunnhildur systir er búin að vera í heimsókn hjá okkur í rúma viku, hún fer aftur til Íslands á morgun og munum við sakna hennar heilmikið. Pétur bróðir kíkti við hjá okkur eina nótt, millilenti hér á leið frá Brussel. Hann var hress og kátur og voru stelpurnar mjög glaðar að sjá hann. Þetta var í fyrsta skipti síðan í sundferðalaginu í Hollandi árið 1992 sem við systkinin þrjú erum saman í útlöndum!
Ég, Gunnhildur og Ásta Hlín skruppum í pikknikk í gær í Kongens Have, það var dásamlegt. Við tókum með okkur heitt kakó á brúsa, kryddbrauð og marmaraköku (bakað af Gunnhildi). Garðurinn var fullur af fólki að njóta veðurblíðunnar, vorið er komið og styttist óðum í sumarið. Hér fyrir neðan er svo ein mynd af Pétri að lesa fyrir Ástu Hlín en hinar myndirnar eru úr Kongens Have.


26. febrúar 2008

kandidatsnámið

General kriteria handler om metodologisk gennemsigtighed, det betyder at undersøgelsens metodologiske struktur er tydileg eller transparent. Undersøgelsen skal også være intern konsistente. Det skal være sammenhæng mellem tema, problemstillinger, metodologisk design, kvalitative analyser og teori... Svona byrjaði fyrirlestur nokkur er ég hélt um daginn á dönsku, já á dönsku. Það er nokkuð ljóst að manni fer aðeins fram í dönskunni, en þetta var nú ansi strembið engu að síður. Annars gengur bara mjög vel í skólanum, ég byrjaði í kandidatsnáminu í byrjun febrúar og líst bara mjög vel á. Þar sem ég er ekki með neinar myndir ætla ég að hafa þetta blogg stutt, en sá sem getur þýtt textann hér að ofan fær verðlaun :)

9. febrúar 2008

Ísland klárað...

Jæja, það er kannski orðið tímabært að skrifa eitthvað hér inn. Ég er náttúrulega löngu komin heim frá Íslandi, þar var mjög notalegt að vera en dásamlegt að komast heim aftur. Það var frábært að hitta Adda minn og stelpurnar mínar... sem sjást hér að neðan. Mig langaði samt sem áður að smella inn hér nokkrum myndum frá Íslandi til að klára þetta einhvern veginn. Við höfum hér eina mynd af rollunum hennar mömmu, þær eru alveg bráðsmellnar eins og sést á myndinni. Eins og áður hefur komið fram var ég á Akureyri í þrjá daga í góður yfirlæti systur og mágs. Læt fylgja nokkrar myndir af þeim hjónaleysum... þau eru alveg frábær. Síðasta myndin er svo tekin niður Gilið á Akureyri, það eru engar brekkur hér í Köben þannig að mér fannst þetta alveg stórkostlega merkilegt. Set inn fleiri og nýrri fréttir mjög fljótlega... jafnvel myndir líka.






24. janúar 2008

næsti dagur..

Á mánudeginum var skroppið til Hvammstanga. Mamma flutti loksins í nýja eldhúsið sitt í leikskólanum og hjálpaði ég henni við það. Í staðinn fékk ég dásemdar pítu með alvöru pítusósu.. oh það var ekki slæmt. Eftir heilmikið pítuát lá leið mín til Katrínar og fjölskyldu. Þar hitti ég nýjasta fjölskyldumeðliminn, hana Kötlu Ísold. Þessi systkin eru öll alveg óskaplega myndarleg, enda óskaplega myndarlegt fólk sem bjó þau til. Um kveldið var svo skellt sér í heita pottinn með þeim gömlu.. það var alveg frábært. Annars er ég stödd núna á Akureyri hjá Gunnhildi systur og Trausta mági mínum. Loksins komin í netsamband og nota því tækifærið og hendi hér inn fréttum og myndum. Njótið vel.




í túninu heima

Eftir hálfbrösulega flugferð fórum við Tómas í flugrútuna til Reykjavíkur. Ekki tók við skemmtilegri ferð þá, full rúta af Pólverjum að drekka bjór og ungum breskum strákum að drekka eitthvað allt annað en bjór. Ekki heyrðist íslenska alla leiðina. Óli tengdó tók á móti okkur á BSÍ, var búinn að bíða þar í rúma tvo tíma því ég gat ekki hringt í neinn og enginn í mig. Við fórum beint í pylsuvagninn og hann splæsti á mig tveimur pylsum.. það var algjör unaður. Ég hef nú saknað íslensku pylsunnar ansi mikið. Seinna um kvöldið sóttu Erna og Matti okkur heim til Óla og við brunuðum á Hvammstanga. Hitti ég þar Ínu og co. en mútta krútta og pabbi labbi komu og sóttu mig þangað stuttu seinna. Það var dásamlegt í sveitinni, eins og sést á myndunum hér fyrir neðan. Á fyrstu myndinni sést í virkið, á annarri mynd er "túnið heima", á þeirri þriðji er pabbi að bóndast. Á fjórðu myndinni er Bílda (rollan) að reyna að sleikja mömmu í framan, það finnst henni voða gaman.. Bíldu sko. Á fimmtu myndinni er Freyja, sem við Addi eigum ásamt börnum okkar. Á síðustu myndinni er svo Gormurinn minn, sem mér þykir endalaust vænt um og var dásamlegt að hitta. Sveitalífið var alveg frábært.





Á Kastrup

Á laugardaginn síðasta urðu miklar breytingar á heimilishaldinu á Axel Heides Gade. Snæbjörn fór til Edinborgar og við Tómas fórum til Íslands. Því varð Addi minn einn eftir í kotinu með skvísurnar okkar. Hér fyrir neðan eru myndir af öllu genginu (nema mér...) á flugvellinum að bíða eftir að komast að í innrituninni.