24. janúar 2008

næsti dagur..

Á mánudeginum var skroppið til Hvammstanga. Mamma flutti loksins í nýja eldhúsið sitt í leikskólanum og hjálpaði ég henni við það. Í staðinn fékk ég dásemdar pítu með alvöru pítusósu.. oh það var ekki slæmt. Eftir heilmikið pítuát lá leið mín til Katrínar og fjölskyldu. Þar hitti ég nýjasta fjölskyldumeðliminn, hana Kötlu Ísold. Þessi systkin eru öll alveg óskaplega myndarleg, enda óskaplega myndarlegt fólk sem bjó þau til. Um kveldið var svo skellt sér í heita pottinn með þeim gömlu.. það var alveg frábært. Annars er ég stödd núna á Akureyri hjá Gunnhildi systur og Trausta mági mínum. Loksins komin í netsamband og nota því tækifærið og hendi hér inn fréttum og myndum. Njótið vel.




4 ummæli:

Arnar Olafsson sagði...

Píta með alvöru pítusósu, snjór og heiturpottur! Gerist það mikið betra. Bið kærlega að heilsa Gunnhildi og Trausta. Bestu kveðjur frá Axel Heides.

Sigrún sagði...

Ég bið bara að heilsa þér, hefði verið gaman að hitta þig, en bara næst :)

Nafnlaus sagði...

Hæ Helga, oh var að sjá kaffipælinguna í dag, mánudag....arg
Hefði bara verið gaman að hitta þig.
Er annars með 123.is/laufeylind endilega vertu í bandi.
Kv. Laufey Lind

Nafnlaus sagði...

Sæl Helga!
Hvað segirðu?
Ég er að spá í upptöku við háskóla í DK eftir að ég klára B.A. í sálfræði á Akureyri og hugsaði að þar sem að þú ert búin að fá inni í KU þá kannski þú gætir aðeins útskýrt fyrir mér?! Þegar þitt nám var metið þyrftirðu þá að taka einhver auka fög við KU áður en þú gast byrjað? Þau fög sem þú varst ekki með nógu margar ECTS einingar fyrir þyrftirðu að taka þau öll aftur? Skrifaðu mér á emma251@hotmail.com ef þú nennir;)
Hej hej:D
Kv. Emilie