5. nóvember 2007

cake a bake... eða bake a cake

Addi var að vinna verkefni í skólanum með félögunum Sigga Frigg og Kristjáni hinum danska. Þeir áttu m.a. að gera módel að garði.. í miðjum klíðum heyrðist úti í horni.. why don't we just bake a cake? Ég hló eins og bjáni, en áður en ég vissi af var ég búin að baka tvær skúffukökur. Siggi sá um hönnunina, en ég veitti honum faglega ráðgjöf í glassúrásetningu ásamt öðru. Þetta var hin besta skemmtun, þetta verður nú sjaldan gert í tengslum við mitt eigið nám. Þess ber að geta að eftir að þeir héldu fyrirlesturinn var nemendum og kennara boðið upp á kökuna, þannig að ég fékk ekki einu sinni að smakka... hér fyrir neðan eru myndir af ósköpunum.





3 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Þetta er ógissslega flott.
Afhverju ekki að hafa garðinn í alvöru úr súkkulaðiköku, þá myndi hann alltaf vera vinsæll og við þyrftum ekki að klippa tré eða reyta arfann..

Nafnlaus sagði...

gaman að geta fylgst með þér hér. kíki alltaf við en er ódugleg við að commenta..
hafðu það sem best þarna í danaveldi.
bestu kveðjur..hafdís ólafsdóttir

Helga sagði...

já.. namm það væri ekki slæmt að hafa heilan súkkulaðigarð :)

Gaman að "heyra" í þér hér Hafdís mín, gott að vita að gamlir vinir kíkja við hérna :)