25. ágúst 2007

Vuggestue og børnehave

Nú hafa dæturnar verið í aðlögun í leikskólum sínum. Lára Huld er á leikskóla sem heitir Bryggen og er á Snorragötu. Ásta Hlín fékk inni Snorretoppen sem er einnig á Snorragötu, en er í bráðabirgða húsnæði á Sundholmsvej til 1. febrúar. Aðlögunin hefur gengið vonum framar. Sú yngri var mjög kát að komast loksins burt frá leiðinlegu foreldrunum, brosir þegar við förum og er brosandi þegar við komum. Það hefur ekki gengið alveg snuðrulaust fyrir sig með þá eldri, enda skilur hún ekkert sem sagt er og getur lítið tjáð sig. Hún er stundum hvumpin á morgnana þegar við förum en er svo hress og kát eftir daginn. Hún er búin að eignast vinkonu á leikskólanum sem heitir Fríða Liv, jú svei mér þá - hún er íslensk. Þær hafa hjálpað hvorri annarri mikið, enda skilja þær hvora aðra mjög vel.

Fyrsta myndin er tekin á leið í leikskólann, en við hjólum alltaf með skvísurnar. Næsta mynd er svo af Ástu Hlín í leikskólanum sínum.



Hér eru vinkonurnar Lára Huld og Fríða Liv, hér er stórt og flott hengirúm sem krakkarnir hafa mjög gaman að. Á myndinni hér til hægri er eitt af trjánum í leikskólanum hjá Láru Huld, í því hangir m.a. rólur, kaðlar, hengirúm, kaðalstigar svo eitthvað sé nefnt.



Í dag var haldin sumarhátíð í Bryggen, þar var meðal annars bakað brauð við óvenjulegar aðstæður - brauðið var svo borðað af bestu lyst.



Hér fyrir neðan má sjá þá yngri róla sér í hengirúmi og þá eldri sveifla sér í tré :) Báðar þessar myndir eru teknar á hátíðinni í leikskólanum hennar Láru Huldar.



Eins og sést er lífið dásamlegt hér í Köben. Hvað mig sjálfa varðar er ég enn að bíða eftir svari frá skólanum mínum... þó hann eigi nú að byrja þann 3. september. Danir eru búnir að finna það út að mér finnst ekkert skemmtilegra að gera en að bíða eftir svari um það hvað ég sé að fara að gera eftir já... rúmlega eina viku :) Gaman að þessu.... og svo allir duglegir að kommenta

3 ummæli:

Sigrún sagði...

hæ, En þú hefur ekkert skrifað um hana Eivöru??

Helga sagði...

úpss.. heyrðu, hún var geggjuð - ég bara lokaði augunum og ímyndaði mér að ég væri stödd í Borgarvirki og þetta var fullkomið :)

Nafnlaus sagði...

Halló Halló Helga mín.

Rosalega gaman að heyra hvað ykkur líkar vel í köben :) enda æðisleg borg og ég er alltaf með smá hemþrá til köben af og til.....annars vildi bara kvitta fyrir mig...

venlig hilsen
Jóhanna