jólin, jólin alls staðar
Aðfangadagskvöld var frábært í alla staði. Íslenskt lambalæri, danskur svínahamborgarahryggur og alls konar gúmmelað með. Heimalagað laufabrauð, malt og appelsín, grænar baunir.. sem sagt alveg eins og á Íslandi. Prinsessan stóð sig vel í pakkaupptektinni og var ofsalega ánægð með allar gjafirnar. Það heyrðist "vááá" í hvert skipti sem hún sá hvað kom út úr gjafapappírnum. Það þurfti náttúrulega að máta allt og prófa allt strax :) Kærar þakkir fyrir stelpuna og auðvitað okkur líka.


k
k
k
k
Hér að ofan til vinstri situr Ásta Hlín við jólatréð, hægra megin er hún komin í peysu sem amma Lilla gaf henni og er að leika sér með dót frá Gunnhildi frænku og Trausta. Fyrir neðan til vinstri er hún komin í peysu sem amma í sveitinni prjónaði á hana og er að bisa við að ná bókinni úr pakkanum líka. Hægra megin er hún komin í úlpu frá Óla afa og er að leika sér með síma sem amma og afi á Akureyðarfirði gáfu henni. Þess ber að geta að hún er í skóm frá Eydísi, Berglindi og fylgifiskum .. og var reyndar í þeim allt kvöldið :)
2 ummæli:
Hva eiga tid tetta barn tid Arnald? Það jeg ekki vissi. Jeg jeta einn allur jólin, baunir og Svinekjet með kertaljos uppi á loft í kvistherbergið. Þú ekkert hringja mig. En gledilegt jól. Jeg hugsa oftast þig. Þinn laumuvin.
Glædelig jul og godt nytår! Ásta Hlín er búin að stækka mikið - algjör dúlla! Er nýkomin heim frá Danmörku og það er bara rok og rigning hér!
Kær kveðja
Emilie
Skrifa ummæli