17. ágúst 2007

smá samantekt

Jæja, það tókst. Loksins gef ég mér tíma til að setjast niður og smella smá fréttum og myndum hér á síðuna. Reyndar er ekki einvörðungu við mig að sakast þar sem Addi hefur einokað tölvuna vegna prófalesturs, en það er afstaðið. Það verður nú stiklað á stóru hér þar sem ýmislegt hefur verið brallað síðan síðast.

Mamma og Lena frænka komu í heimsókn og voru hér hjá okkur í fimm yndislega daga, hér fyrir neðan eru þær í smá verslunarferð á Strikinu. Á fimmtudeginum bættust Gunnhildur og Trausti í hópinn og gistu hjá okkur eina nótt. Myndin er tekin á bryggjunni þar sem heitt var í veðri og tilefni mikið til ísáts.



Um það bil viku eftir að mamma, Lena, Gunnhildur og Trausti yfirgáfu okkur fengum við nýja gesti. Það voru Hrafnhildur mágkona mín (systir Adda) og dóttir hennar, Amanda Eir. Hér fyrir neðan er mynd af þeirri síðarnefndu ásamt Ástu Hlín. Svo var haldið til Póllands....



Ástæðan fyrir þeirri ferð var brúðkaup Berglindar, mágkonu minnar (sem er líka systir hans Adda) og Mareks (sem er ekki systir hans Adda). Það var ýmislegt sem bar fyrir sjónir í Póllandi og óhætt að segja að þessi "sláttuvél" hafi gripið athygli manns á göngu okkar um Wejherowo. Brúðkaupið var afar fallegt, bleikt var þema dagsins eins og sést á myndinni hér fyrir neðan.



Þegar heim var komið tók svo "hversdagslífið" við, slappað af og slakað á. Hér eru nokkrar myndir af góðum degi á bryggjunni.




Svo kom stóra prinsessan loksins heim.. Á hægri myndinni er verið að spjalla í símann við Sunnevu vinkonu - en hún vildi endilega koma og leika við Láru Huld.

4 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Æðislegt!:)

Nafnlaus sagði...

... er ekki ALLT OF HEITT þarna á þessari bryggju... mér sýnist eins og fólk sé bara hreinlega að stikna úr hita..... ekki nógu gott sko, sendu eitthvað af þessum hita til okkar hérna á klakann

Helga sagði...

hehe.. jú, það var eiginlega alltof heitt þennan dag. En það er bara fínt núna, þannig að ég veit ekki hvort ég tími að senda þér eitthvað af hitanum. Þú verður bara að kíkja í heimsókn Brynja :)

Nafnlaus sagði...

Það stefnir allt í það held ég bara