18. nóvember 2007

afmælisdagurinn...

var ansi góður :) Heimilið var fullt af börnum eins og vera ber þegar einhver á afmæli, Gummi og Sunneva voru sem sagt í heimsókn. Við mæðgur settum glassúr á köku og skreyttum með smarties - sú allra glæsilegast afmæliskaka sem um getur. Svo var afmælissöngurinn sunginn, blásið á kertið og klappað. Við vorum nú bara þrjár um kökuna, sem var svo sem ágætt þar sem hún var í smærri kantinum. Lára Huld spurði mig hvað ég væri gömul og ég bað hana nú að giska, hún hélt ég væri svona um það bil 14 :) já, maður ber aldurinn vel. Þá sagði ég henni að Benni Palli frændi hennar væri 14 og ég hlyti nú að vera töluvert eldri en hann.. þá sagði hún að ég væri ábyggilega bara svona 16... Svo var okkur boðið í kvöldmat til Kristínar og Tóta, þar var boðið upp á dýrindis lasagne og eina góða afmælisgjöf sem ekki verður opinberuð hér híhíhí. Þykir mér erindi þetta vera orðið fulllangt og kveð því í bili, kærar þakkir fyrir allar kveðjurnar.

5 ummæli:

Örvar sagði...

Til hamingju með afmælið skvísa!

Knús og kossar frá Edinborg
Þóra, Jón og Sigurrós

Nafnlaus sagði...

Til hamingju með afmælið :)

Harpa sagði...

oh betra sein en aldrei... TIL HAMINGJU MEÐ AFMÆLIÐ UM DAGINN KÆRA VINKONA !!! Ég er ekki góð í þessu... :( Annars kem ég reglulega hér við Helga mín, gaman að fylgjast með og sjá að allt gengur svona vel. Hlakka til að sjá þig einhverntíman.

Óperukveðjur úr Salzburg

Nafnlaus sagði...

Til hamingju með afmælið í fyrradag kæra Helga:)
segi eins og Harpa skarpa Betra seint en aldrey...
Kveðja Sirrý og co.

Nafnlaus sagði...

Nú er eins og ég hafi gefið þér einhverja dónagjöf..HEHE