11. september 2007

skólastelpa á ný :)

Það er ekki laust við að maður er hamingjusamur með nýju aðstæðurnar, komin í skóla LOKSINS... Ég fékk sem sagt loksins svar frá skólanum og byrjaði í síðustu viku. Er í þremur kúrsum (klinisk psykologi II, pædagogisk psykologi og udviklingspsykologi II). Ég mæti fjórum sinnum í viku, tvo klukkutíma í senn.. tæplega reyndar.. þannig að skólasókn er ekki mikil. Lesturinn er þeim mun meiri, enda virðist þetta snúast mest um það að lesa og lesa.. og kannski lesa svolítið meira. Þetta fer náttúrulega allt fram á dönsku og gengur mér misvel að skilja það sem fer fram í tímum. Ég var búin að taka myndir af skólanum til að smella inn hér, en myndavélin okkar týndist, eða var stolið þegar við fórum í strætó upp í Nørrebro.. finnst það líklegra. Þess vegna koma engar myndir með þessu bloggi. Læt þetta nægja í bili.

3 ummæli:

Sigrún sagði...

Það er greinilega bara ójþjóðalýður sem býr þarna í Danmörku :)

Gunnsutetrid sagði...

Hæ systir mín. Gaman að lesa bloggið þitt. Sendi þér tölvupóst við tækifæri til að fá enn meiri fréttir af ykkur og segja eitthvað sniðugt af okkur Trausta.

Helga sagði...

það líst mér vel á Gunnhildur mín :)