24. apríl 2008

Gleðilegt sumar

Gleðilegt sumar allir saman! Það er svo sannarlega komið sumar hér í Kaupmannahöfn, í dag var t.a.m. 16 stiga hiti og glampandi sól. Pétur bróðir kom óvænt í heimsókn og Lára Huld naut heldur betur góðs af því, hann kenndi henni nefnilega að hjóla! Set hér myndband af skottunni minni (sem skyndilega er orðin svo stór) hjóla eins og vindurinn.

21. apríl 2008

Afmælismyndband

20. apríl 2008

Afmælismyndavesenis....

Nú er litla stelpan mín hún Lára Huld orðin fimm ára, ótrúlegt hvað tíminn líður hratt. Við héldum veislu í dag þar sem var mikið etið, hlegið og sprellað. Dóttirin fékk hina ýmsu fararskjóta í afmælisgjöf, t.a.m. hjól, línuskauta og vængi.... Ég ætlaði að vera sérstaklega dugleg að setja inn myndir af henni, í ljósi þess að enginn úr fjölskyldunni mætti í veisluna. Því miður er tölvan með einhverja stæla við mig þannig að ég geti ekki sett inn myndir núna, en vonandi verður þetta allt í lagi á morgun. Þið fylgist vonandi öll spennt með??

17. mars 2008

Systkinin og pikknikk

Gunnhildur systir er búin að vera í heimsókn hjá okkur í rúma viku, hún fer aftur til Íslands á morgun og munum við sakna hennar heilmikið. Pétur bróðir kíkti við hjá okkur eina nótt, millilenti hér á leið frá Brussel. Hann var hress og kátur og voru stelpurnar mjög glaðar að sjá hann. Þetta var í fyrsta skipti síðan í sundferðalaginu í Hollandi árið 1992 sem við systkinin þrjú erum saman í útlöndum!
Ég, Gunnhildur og Ásta Hlín skruppum í pikknikk í gær í Kongens Have, það var dásamlegt. Við tókum með okkur heitt kakó á brúsa, kryddbrauð og marmaraköku (bakað af Gunnhildi). Garðurinn var fullur af fólki að njóta veðurblíðunnar, vorið er komið og styttist óðum í sumarið. Hér fyrir neðan er svo ein mynd af Pétri að lesa fyrir Ástu Hlín en hinar myndirnar eru úr Kongens Have.


26. febrúar 2008

kandidatsnámið

General kriteria handler om metodologisk gennemsigtighed, det betyder at undersøgelsens metodologiske struktur er tydileg eller transparent. Undersøgelsen skal også være intern konsistente. Det skal være sammenhæng mellem tema, problemstillinger, metodologisk design, kvalitative analyser og teori... Svona byrjaði fyrirlestur nokkur er ég hélt um daginn á dönsku, já á dönsku. Það er nokkuð ljóst að manni fer aðeins fram í dönskunni, en þetta var nú ansi strembið engu að síður. Annars gengur bara mjög vel í skólanum, ég byrjaði í kandidatsnáminu í byrjun febrúar og líst bara mjög vel á. Þar sem ég er ekki með neinar myndir ætla ég að hafa þetta blogg stutt, en sá sem getur þýtt textann hér að ofan fær verðlaun :)

9. febrúar 2008

Ísland klárað...

Jæja, það er kannski orðið tímabært að skrifa eitthvað hér inn. Ég er náttúrulega löngu komin heim frá Íslandi, þar var mjög notalegt að vera en dásamlegt að komast heim aftur. Það var frábært að hitta Adda minn og stelpurnar mínar... sem sjást hér að neðan. Mig langaði samt sem áður að smella inn hér nokkrum myndum frá Íslandi til að klára þetta einhvern veginn. Við höfum hér eina mynd af rollunum hennar mömmu, þær eru alveg bráðsmellnar eins og sést á myndinni. Eins og áður hefur komið fram var ég á Akureyri í þrjá daga í góður yfirlæti systur og mágs. Læt fylgja nokkrar myndir af þeim hjónaleysum... þau eru alveg frábær. Síðasta myndin er svo tekin niður Gilið á Akureyri, það eru engar brekkur hér í Köben þannig að mér fannst þetta alveg stórkostlega merkilegt. Set inn fleiri og nýrri fréttir mjög fljótlega... jafnvel myndir líka.






24. janúar 2008

næsti dagur..

Á mánudeginum var skroppið til Hvammstanga. Mamma flutti loksins í nýja eldhúsið sitt í leikskólanum og hjálpaði ég henni við það. Í staðinn fékk ég dásemdar pítu með alvöru pítusósu.. oh það var ekki slæmt. Eftir heilmikið pítuát lá leið mín til Katrínar og fjölskyldu. Þar hitti ég nýjasta fjölskyldumeðliminn, hana Kötlu Ísold. Þessi systkin eru öll alveg óskaplega myndarleg, enda óskaplega myndarlegt fólk sem bjó þau til. Um kveldið var svo skellt sér í heita pottinn með þeim gömlu.. það var alveg frábært. Annars er ég stödd núna á Akureyri hjá Gunnhildi systur og Trausta mági mínum. Loksins komin í netsamband og nota því tækifærið og hendi hér inn fréttum og myndum. Njótið vel.




í túninu heima

Eftir hálfbrösulega flugferð fórum við Tómas í flugrútuna til Reykjavíkur. Ekki tók við skemmtilegri ferð þá, full rúta af Pólverjum að drekka bjór og ungum breskum strákum að drekka eitthvað allt annað en bjór. Ekki heyrðist íslenska alla leiðina. Óli tengdó tók á móti okkur á BSÍ, var búinn að bíða þar í rúma tvo tíma því ég gat ekki hringt í neinn og enginn í mig. Við fórum beint í pylsuvagninn og hann splæsti á mig tveimur pylsum.. það var algjör unaður. Ég hef nú saknað íslensku pylsunnar ansi mikið. Seinna um kvöldið sóttu Erna og Matti okkur heim til Óla og við brunuðum á Hvammstanga. Hitti ég þar Ínu og co. en mútta krútta og pabbi labbi komu og sóttu mig þangað stuttu seinna. Það var dásamlegt í sveitinni, eins og sést á myndunum hér fyrir neðan. Á fyrstu myndinni sést í virkið, á annarri mynd er "túnið heima", á þeirri þriðji er pabbi að bóndast. Á fjórðu myndinni er Bílda (rollan) að reyna að sleikja mömmu í framan, það finnst henni voða gaman.. Bíldu sko. Á fimmtu myndinni er Freyja, sem við Addi eigum ásamt börnum okkar. Á síðustu myndinni er svo Gormurinn minn, sem mér þykir endalaust vænt um og var dásamlegt að hitta. Sveitalífið var alveg frábært.





Á Kastrup

Á laugardaginn síðasta urðu miklar breytingar á heimilishaldinu á Axel Heides Gade. Snæbjörn fór til Edinborgar og við Tómas fórum til Íslands. Því varð Addi minn einn eftir í kotinu með skvísurnar okkar. Hér fyrir neðan eru myndir af öllu genginu (nema mér...) á flugvellinum að bíða eftir að komast að í innrituninni.




16. janúar 2008

Getraun vikunnar

Nú er komið að fasta liðnum "getraun vikunnar". Í þetta skiptið er spurt um eiganda augans! Hér höfum við sex augu sem tilheyra sex manneskjum, ég ákvað að hafa þetta auðvelt og tilheyra því augu þessi mér, manni mínum og börnum okkar. Sá sem giskar á allt rétt fær góð verðlaun sem verða ekki upplýst að svo stöddu. Koma svo!!






14. janúar 2008

Hvar á maður eiginlega að byrja?? Ég hef ekkert bloggað að ráði í ansi langan tíma og bara hreint ekki neitt á þessu ári. Ef ég gef ykkur smá "update" á lífi mínu síðan síðast þá var það nú svo að ég var að skrifa ritgerðir til 2. janúar og gerði nánast ekkert annað fram að þeim tíma. Ég gaf mér þó sérlegt frí frá 23. - 26. desember til að eiga smá jól. Þegar ritgerðum var skilað við mikinn fögnuð fjölskyldumeðlima var skundað af stað í jólagjafainnkaup, fyrir seinni jól.. eða kannski fyrri jól ársins 2008. Því þann 4. janúar komu Snæbjörn, Tómas og Lára Huld til okkar. Við fengum okkur hangikjét, grænar baunir og uppstúf og svo tóku þau upp jólagjafirnar. Það var mjög gaman og hér fyrir neðan má sjá mynd við matarborðið af öllum börnunum. Mér finnst þau svo myndarleg.
'


Í tilefni seinni jólanna snjóaði hér í Kaupmannahöfn og var snjór í eins og eina kvöldstund. Það var allt horfið daginn eftir. Það var mjög notalegt að sjá snjóinn og ég labbaði sérferð út í sjoppu bara til þess að minna mig á hvernig hann er viðkomu (reyndar langaði mig bara í nammi).

Við erum búin að hafa það ótrúlega notalegt eftir að krakkarnir komu, stelpurnar verið á leikskólanum, strákarnir lært og ég hjálpað þeim, pússlað og legið í leti. Vonandi gef ég mér tíma til að setja fleiri myndir og fréttir af liðnum dögum. Hins vegar er ég búin að setja fullt af myndum inn á barnalandssíðurnar hjá stúlkunum, endilega kíkið á það. Læt þetta nægja í bili.

31. desember 2007

árið

Kæra fjölskylda og vinir! Gleðilegt nýtt ár og kærar þakkir fyrir góðar stundir á liðnum árum.

25. desember 2007

jólin, jólin alls staðar

Aðfangadagskvöld var frábært í alla staði. Íslenskt lambalæri, danskur svínahamborgarahryggur og alls konar gúmmelað með. Heimalagað laufabrauð, malt og appelsín, grænar baunir.. sem sagt alveg eins og á Íslandi. Prinsessan stóð sig vel í pakkaupptektinni og var ofsalega ánægð með allar gjafirnar. Það heyrðist "vááá" í hvert skipti sem hún sá hvað kom út úr gjafapappírnum. Það þurfti náttúrulega að máta allt og prófa allt strax :) Kærar þakkir fyrir stelpuna og auðvitað okkur líka.










k
k
k
k
Hér að ofan til vinstri situr Ásta Hlín við jólatréð, hægra megin er hún komin í peysu sem amma Lilla gaf henni og er að leika sér með dót frá Gunnhildi frænku og Trausta. Fyrir neðan til vinstri er hún komin í peysu sem amma í sveitinni prjónaði á hana og er að bisa við að ná bókinni úr pakkanum líka. Hægra megin er hún komin í úlpu frá Óla afa og er að leika sér með síma sem amma og afi á Akureyðarfirði gáfu henni. Þess ber að geta að hún er í skóm frá Eydísi, Berglindi og fylgifiskum .. og var reyndar í þeim allt kvöldið :)

21. desember 2007

jólakveðja

Sökum mikilla anna hér á heimilinu ákváðum við að senda engin jólakort þetta árið. Okkur þykir samt mjög gaman að sjá hversu mörg kort bárust okkur og viljum þakka fyrir það með því að senda hér litla jólakveðju.
l
Við óskum fjölskyldu okkar og vinum gleðilegra jóla og farsælda á komandi ári. Takk fyrir samverustundir á líðandi ári, hlökkum til að sjá ykkur öll hress og kát á nýju ári. Skál!
l
Bestu kveðjur frá okkur í Kaupmannahöfn
K
Helga, Addi og Ásta Hlín
ps. setjum inn jólamynd af prinsessunni á eftir

4. desember 2007

SS.... svaka stress

Fannst við hæfi að skrifa nokkur orð hér niður þar sem nýr mánuðir er kominn. Það er rosalega mikið að gera hjá mér núna, ef ég hefði verið duglegri - skipulagðari og kannski pínu heppnari þá væru ljúfir tímar framundan. Planið var að klára tvær ritgerðir fyrir 3. des. og taka svo vikupróf. Þá gæti ég átt heilög jól og jólafrí... til 4. febrúar! En nei, ég var löt, óskipulögð og pínlítið óheppin vegna tíðra veikinda yngri dótturinnar. Af þeim sökum er ég núna í vikuprófinu góða og á eftir að skrifa báðar ritgerðirnar :( sem ég á að skila 2. janúar. Þannig að jólin verða ekki svo heilög nema í formi heilags náms. Ég held þá bara upp á jólin í janúar í staðinn :) Eins og ég sagði áðan er ég í vikuprófi núna, fékk sex prófspurningar afhentar í gær og á að skila svörum við þeim mánudaginn næsta. Ætla að svara einni á dag, vera ótrúlega dugleg og skipulögð og vonandi heppin líka! Hér fylgja með myndir af mér að læra og yngri dótturinni, lasinni.. hún vildi vera hjá mömmu sinni eins og sést á þesum myndum. Góðar stundir

Hvað er að gerast hér? Bókin komin á borðið og báðar steinsofandi.. Ekki skrýtið að móðirin sé orðin svolítið á eftir í náminu :)

20. nóvember 2007

afmælissöngurinn

Systir mín og mágur sungu fyrir mig afmælissönginn um daginn, ákvað að smella honum hér inn. Það varð þó að vera í formi "myndbands" þannig að þið munið bara að kveikja á hljóðinu :)

18. nóvember 2007

afmælisdagurinn...

var ansi góður :) Heimilið var fullt af börnum eins og vera ber þegar einhver á afmæli, Gummi og Sunneva voru sem sagt í heimsókn. Við mæðgur settum glassúr á köku og skreyttum með smarties - sú allra glæsilegast afmæliskaka sem um getur. Svo var afmælissöngurinn sunginn, blásið á kertið og klappað. Við vorum nú bara þrjár um kökuna, sem var svo sem ágætt þar sem hún var í smærri kantinum. Lára Huld spurði mig hvað ég væri gömul og ég bað hana nú að giska, hún hélt ég væri svona um það bil 14 :) já, maður ber aldurinn vel. Þá sagði ég henni að Benni Palli frændi hennar væri 14 og ég hlyti nú að vera töluvert eldri en hann.. þá sagði hún að ég væri ábyggilega bara svona 16... Svo var okkur boðið í kvöldmat til Kristínar og Tóta, þar var boðið upp á dýrindis lasagne og eina góða afmælisgjöf sem ekki verður opinberuð hér híhíhí. Þykir mér erindi þetta vera orðið fulllangt og kveð því í bili, kærar þakkir fyrir allar kveðjurnar.

15. nóvember 2007

brrrrrr.....

af hverju er ekki ennþá árið '92 og í tísku að vera í kraftgalla.. mikið svakalega var kalt að hjóla með stúlkuna á leikskólann í gær. Ég hjólaði eins hratt og ég gat til að fá örlitla velgju í kroppinn og á sama tíma mæti ég dönsku skvísunum..... í stuttum pilsum og sokkabuxum!!

12. nóvember 2007

veturinn er kominn

Í morgun þurfti ég að "skafa" snjó og klaka af hjólinu mínu... svo var hjólað MJÖG varlega með dótturina í leikskólann, hef nú aldrei prófað að hjóla í hálku fyrr. Mér tókst samt sem áður að komast áfallalaust í leikskólann og heim aftur. Annars stendur sólin sig vel í að bræða þetta litla sem var. Svo spáir 10 stiga hita um helgina þannig að ég veit ekki hversu lengi þessi "vetur" stendur yfir.
k
Allt er gott að frétta héðan, nú erum við Ásta Hlín bara einar í kotinu - Addi skrapp til Íslands og Lára Huld er hjá pabba sínum. Ég er nú svo lukkuleg að Kristín kíkti yfir til mín bæði kvöldin eftir að Addi fór, þannig að mér hefur ekki gefist tóm til að leiðast ennþá. Nú er planið að hjóla út í bókasafn og redda mér tveim skruddum sem ég þarf að lesa í Klínískri sálfræði.. vikuprófið verður í byrjun desember þannig að það er ekki seinna vænna :) Hef engar myndir í þetta skiptið þar sem myndavélin skrapp líka til Íslands - bið að heilsa.

5. nóvember 2007

cake a bake... eða bake a cake

Addi var að vinna verkefni í skólanum með félögunum Sigga Frigg og Kristjáni hinum danska. Þeir áttu m.a. að gera módel að garði.. í miðjum klíðum heyrðist úti í horni.. why don't we just bake a cake? Ég hló eins og bjáni, en áður en ég vissi af var ég búin að baka tvær skúffukökur. Siggi sá um hönnunina, en ég veitti honum faglega ráðgjöf í glassúrásetningu ásamt öðru. Þetta var hin besta skemmtun, þetta verður nú sjaldan gert í tengslum við mitt eigið nám. Þess ber að geta að eftir að þeir héldu fyrirlesturinn var nemendum og kennara boðið upp á kökuna, þannig að ég fékk ekki einu sinni að smakka... hér fyrir neðan eru myndir af ósköpunum.