24. september 2007
19. september 2007
ellan hans salómons...
11. september 2007
skólastelpa á ný :)
25. ágúst 2007
Vuggestue og børnehave
Í dag var haldin sumarhátíð í Bryggen, þar var meðal annars bakað brauð við óvenjulegar aðstæður - brauðið var svo borðað af bestu lyst.
17. ágúst 2007
smá samantekt

13. júlí 2007
8. júlí 2007
28. júní 2007
kúla ársins
Ákvað að smella inn nokkrum myndum og setja inn smá fréttir af okkur. Lífið leikur við okkur hér í Kaupmannahöfn og allt gengur mjög vel. Áður en við fluttum út vorum við búin að búa okkur undir það að geta ALDREI farið í sund, en það er útlit fyrir annað. Við fórum með alla krakkana í DGI-byen, sem er stórfín sundlaug hér í grenndinni. Þar vorum við í hvorki meira né minna en þrjá klukkutíma. Annars er lítið að frétta, við erum bara að slaka á með krökkunum okkar og njóta lífsins hér - milli þess sem opnaðir eru bankareikningar, sótt um leikskóla, húsaleigubætur og annað í þeim dúr.
Hér fyrir neðan má sjá bræðurnar í góðum leik, myndarlega manninn minn og gullfallegu dóttur okkar, sætustu stelpuna í tölvuleik, kúlu ársins og að lokum pizzu-veislu hjá "stóru" krökkunum í Heklahusene (Sunneva, Tómas, Snæbjörn, Gummi og Lára Huld).
23. júní 2007
kannski smá svipur...
Mér hefur aldrei fundist við systur neitt sérstaklega líkar, höfum staðið fyrir framan spegil og glápt á hvora aðra til að finna út úr því af hverju fólk ruglar okkur saman... án þess að botna í því hvað er að "öllu" þessu fólki sem finnst við líkar, en.... svo sá ég þessar myndir hlið við hlið og svei mér þá ef það er ekki bara smá svipur með okkur :)
19. júní 2007
smá myndablogg
Hér er Ásta Hlín alveg eiturhress í flugvélinni, þar gekk allt mjög vel
Hér er húsfrúin mætt á Axel Heides Gade 26, Nettó beint fyrir utan - ekki slæmt það :)
Tómas, Snæbjörn og Lára Huld að borða morgunmatinn úti á svölum
hún var hins vegar mjög hrifin af þessum - þetta er Sindri vinur hennar
