kúla ársins
Ákvað að smella inn nokkrum myndum og setja inn smá fréttir af okkur. Lífið leikur við okkur hér í Kaupmannahöfn og allt gengur mjög vel. Áður en við fluttum út vorum við búin að búa okkur undir það að geta ALDREI farið í sund, en það er útlit fyrir annað. Við fórum með alla krakkana í DGI-byen, sem er stórfín sundlaug hér í grenndinni. Þar vorum við í hvorki meira né minna en þrjá klukkutíma. Annars er lítið að frétta, við erum bara að slaka á með krökkunum okkar og njóta lífsins hér - milli þess sem opnaðir eru bankareikningar, sótt um leikskóla, húsaleigubætur og annað í þeim dúr.
Hér fyrir neðan má sjá bræðurnar í góðum leik, myndarlega manninn minn og gullfallegu dóttur okkar, sætustu stelpuna í tölvuleik, kúlu ársins og að lokum pizzu-veislu hjá "stóru" krökkunum í Heklahusene (Sunneva, Tómas, Snæbjörn, Gummi og Lára Huld).
3 ummæli:
Hæ Helga! Ég var miður mín þegar ég sá msn skilaboðin frá þér sem komu akkúrat meðan ég var í mat og gat ekki svarað. Við ættum kannski að prófa að skrifast á í tölvupósti. Notarðu ekki annars msn netfangið þitt fyrir meil líka?
Takk fyrir kveðjuna! Við erum komin með fiðring í magann að komast út að hitta ykkur öll! Er að reyna að draga KG í Knuthenborg Park 23.júlí, komið þið ekki bara líka? Hilsen frá Daggarvöllum ;)
Þórunn Gréta, þú getur líka sent mér á helgavil@ismennt.is - nota það mun oftar. Ég held það sé mál að skrifast á ..
var að bíða eftir kommentum áður en ég kem með næstu færslu, þannig að von er á nýrri færslu von bráðar
Skrifa ummæli