30. apríl 2009

Afmælisbloggið

Þann 20. apríl síðast liðinn átti litla stelpan mín stórafmæli, orðin sex ára og byrjar bara í skóla í haust. Aldeilis spennandi tímar framundan, ég segi nú ekki annað. Við byrjuðum á því að halda eins konar "leikskólaafmæli" en þá komu allar stelpurnar á deildinni hennar hingað heim í fylgd leikskólakennaranna. Ferlega notalegt að sleppa alveg við að fá alla foreldrana með hehe... Stelpurnar byrjuðu á því að leika sér, svo var borðað, farið í pakkaleik og svo út að leika. Þetta gekk ótrúlega vel fyrir sig og var gaman fyrir Láru Huld að fá allar stelpurnar heim, svona áður en hún hættir í leikskólanum.

Á laugardaginn síðasta héldum við fjölskyldu/vina-afmælisbjóð heima hjá hinum foreldrunum. Á leiðinni rákumst við á þessar líka agalegu sætu gæsir, Ásta Hlín var alveg steinhissa :)


Í afmælinu var agalega ljúft og þangað komu margir góðir gestir. Á fyrstu myndinni eru krakkarnir í afmælinu, alla vega þeir sem voru mættir á slaginu og voru ekki sofandi þegar byrjað var að borða :) Á hinni myndinni er svo kærustuparið... já, ég á víst orðið tengdason! Þetta er Karl Jóhann og er hann með Láru Huld á leikskóla. Hafa þau verið perluvinir frá fyrstu kynnum og hefur vináttan verið að þróast í eitthvað alvarlegra undanfarið.... Það er reyndar gaman að segja frá því að þau hættu að vera kærustupar á smá tímabili, ég notaði þá tækifærið og spurði Láru Huld hvort það væri ekki betra að bíða þangað til hún yrði aðeins eldri með svona lagað. Jú, hún tók bara vel í það og sagði að kannski myndi hún bara finna einhvern þegar hún byrjaði í skólanum eða á frístundaheimilinu..... sem verður í ágúst!!! En í millitíðinni fóru ástarbréfin að berast á milli hennar og Karls Jóhanns og þau ákváðu bara að verða kærustupar aftur.... híhíhí


Eftir veisluna var hjólað heim á leið og þá kom í ljós að sú stutta var ansi þreytt eftir allt stuðið, steinsofnaði á hjólinu. Það hefur ekki gerst í ansi langan tíma og þótti okkur því ástæða til að smella einni mynd af stúlkunni :) Já, á meðan ég man þá þakka ég kærlega fyrir öll kommentin, það er dásamlegt að vita til þess að það er einhver sem kíkir ennþá inn á síðuna - og kommentar. Þó svo að mamma sé nú ekki enn búin að kommenta..... koma svo mútta tútta!!!

16. apríl 2009

Síðan síðast...

Jæja, ég hef tekið þá afdrifaríku ákvörðun að blása smá lífi í þetta blogg mitt. Það er ómögulegt að elskulegir ættingjar okkar og vinir geti ekki fylgst betur með okkur hérna í Köben... í myndum og máli. Það væri hins vegar dásamlegt ef fólk kommentaði þegar það leggur leið sína um síðuna svo ég fyllist miklum krafti og þrótti til að blogga hér alla vega oftar en tvisvar á ári.
-
Ætli það sé ekki best að byrja þar sem ég endaði síðast, eða í desember á síðasta ári. Við áttum hér dásamlegustu jól með öllum börnum okkar. Það var ótrúlega ljúft og skemmtilegt að hafa alla krakkana loksins hjá okkur, þau nutu þess í botn og voru voða sæl að hafa hvort annað. Fyrsta myndin hér að neðan er af þessum elskum á aðfangadagskvöld, eru þau ekki sæt? Næstu þrjár myndir eru teknar á Íslandi. Við skruppum þangað í janúar vegna þessa að Helga amma hans Adda dó og við vildum auðvitað hitta ættingjana á slíkum tímum.




Í febrúar kom svo öskudagur, eða Fastelavn eins og það heitir hér í Danmörku. Stelpurnar fóru náttúrulega klæddar upp í leikskólana sína, Lára Huld sem Þyrnirós en Ásta Hlín var ballerína. Þar var kötturinn sleginn úr tunnum og allir fengu nammi (popp og rúsínur) og skemmtu sér konunglega.

Í byrjun mars skelltum við hjónaleysin okkur í helgarferð til Rómar..... I love Róm... hvað get ég sagt? Þetta var frábær ferð í alla staði, 20 stiga hiti og sól allan tímann. Fínt gistiheimili á frábærum stað, löbbuðum um allt, átum pizzur, pasta og ítalskan ís.... Addi drakk hágæða kaffi og hvítvín en ég var meira í kókinu :) Hefði nú alveg verið til í ískalt hvítvínsglas... en kannski næst. Já, best að segja .... takk Þórdís og Jón fyrir pössunina, þið eigið inni STÓRAN greiða!!



Tómas og Óli afi komu svo um páskana, hlaðnir íslensku lambakjöti, páskaeggjum og öli... það var dásamlegt að hafa þá. Veðrið var frábært, 15 stiga hiti og sól allan tímann. Við bara slökuðum á heima, fórum í göngutúra á bryggjuna, kíktum í bæinn og átum súkkulaði og höfðum það kósý. Hér höfum við svo nokkrar myndir af hjólasnillingunum, fyrst Tómas sem gerir alls konar kúnstir á hjólinu eins og ekkert sé sjálfsagðara. Svo kemur Lára Huld í nýja bleika Sollu stirðu gallanum sem hún fékk í fyrirfram 6 ára afmælisgjöf frá Óla afa. Þriðja myndin er af afanum sjálfum, en hann fékk að prófa hjólið mitt og hjólaði eins og hann hefði ekki gert neitt annað síðast liðin ár :) Síðasta myndin er svo tekin á bryggjunni.




Svo ætla ég að kynna nýjasta fjölskyldumeðliminn til sögunnar, sem hefur það ansi gott inni í bumbunni minni og ætlar að vera þar til 28. ágúst... Við fórum í sónar í gær og allt leit rosalega vel út og við vorum mjög glöð og þakklát fyrir það. Það reyndist frekar erfitt fyrir ljósmóðurina að finna út hvort þetta væri stúlka eða drengur, en eftir þrjár tilraunir þá fannst henni sem hún sæji eitthvað... eitthvað sem benti til þess að þetta væri.... STÚLKA :)



Já, þar hafið þið það og endilega verið dugleg að kommenta - það er svo miklu skemmtilegra... og þá á ég líka við þig mamma!!

21. desember 2008

Bara grín....




23. nóvember 2008

Enginn tími til að tilla....

Ég held það sé óhætt að segja að það sé búið að vera nóg að gera hjá okkur hér á Axel Heides Gade. Verkefnavinna í skólanum, nóg að gera í félagslífinu og leikskólastarfinu og öðru tilfallandi. Annars eru allir hressir og kátir, allt gott að frétta héðan. Mér fannst tilvalið að smella inn hér einu bloggi í tilefni þess að mánuður er liðinn frá síðasta bloggi. Byrja hér á tveimur skondnum myndum ef yngri prinsessunni, hún er mjög ákveðin og fær foreldra sína til að samþykkja ýmislegt... eins og til dæmis að fá að sofna með tösku :)

Eflaust hafa nú flestir frétt að eldri prinsessan fékk þó nokkuð af gæludýrum um daginn, ekki reyndar sérlega skemmtileg gæludýr... en það fundust í henni "nokkrar" lýs. Þegar hún kom til okkar tókum við á móti henni með kambinn í annarri og lúsaolíu í hinni, var hún bara nokkuð sátt við meðferðina - enda leið henni eins og hún væri á snyrtistofu. Sú yngri vildi auðvitað fá að vera með, en þar sem í henni var engin lús fékk hún bara froðu í hárið sem var svo jafnóðum skolað úr með vatni :) Af gæludýrunum er þó það að frétta að ekki hefur sést til þeirra síðan þann dag sem meðferðin átti sér stað... fyrir utan þó nokkuð af verðandi afkvæmum sem voru klippt úr jafnóðum og þó fundust.

Var það ákveðið um daginn að færa Ástu Hlín inn í barnaherbergið, þar sem allur barnaskarinn mun nú hrjóta saman hver í sínu horni. Við hækkuðum upp rúmið hennar Láru Huldar og smelltum litlu krúttlegu rúmi þar undir. Ásta Hlín er að vonum mjög ánægð með rúmið sitt og "herbergið" sem myndaðist þarna undir rúminu.
Um síðustu helgi fórum við fjölskyldan í heimsókn til Fríðu Livar, sem var með Láru Huld á leikskóla. Hún hætti á leikskólanum í sumar og hafa þær ekkert sést síðan. Það voru mikil fagnaðarlæti ... en þó aðallega læti. Karl Jóhann var líka á svæðinu, en hann er ennþá með Láru Huld á leikskóla. Þetta var afskaplega góð heimsókn og tóku þau Fannar og Dóra, foreldrar Fríðu Livar, mjög vel á móti okkur.

Í gær fórum við svo á jólahátíð í leikskólanum hennar Láru Huldar. Þar var dansað og sungið, búnir til aðventukransar og föndrað. Jólasveinninn kom svo og gaf öllum krökkunum nammi, sem vakti mikla gleði. Þar sem gleymdist að taka myndar af þessum stóratburðum gerðist ég svo gróf að "stela" myndum af síðunni hennar Þórdísar... ég vona að þú fyrirgefir mér það :)
Já, að lokum er hægt að segja það að veturinn er mættur á svæðið - það snjóaði nefnilega í fyrsta skipti! Rétt eins og í fyrra var húsvörðurinn mættur klukkan ellefu um kvöldið til að skafa snjóinn af stéttunum.... Smelli inn einni "snjómynd" hér að lokum. Hafið það gott öll sömul og kærar þakkir fyrir allar afmæliskveðjurnar :)

24. október 2008

Ásta Hlín 2 ára

Í gær varð litla stúlkan mín 2 ára - já, það er ótrúlegt hvað tíminn líður hratt. Við ákváðum að hafa smá afmælis.. í tilefni dagsins - eina köku og gjafir frá systkinum og foreldrum. Hún var mjög glöð og ánægð með daginn. Setti hér inn smá myndbrot þar sem hún var að reyna að blása á kertin tvö, gekk svona misvel..... Svo verður afmælisveislan haldin á morgun :)

12. október 2008

myndablogg

Sælt verið fólkið, ég ákvað að smella inn nokkrum myndum hér -sér í lagi af stúlkunum, þar sem barnalandssíðurnar liggja niðri sökum kreppunnar. Það er allt gott héðan að frétta, kreppan farin að teygja sig hingað til Danmerkur - en við erum bara bjartsýn og vonum að opnist fyrir peningaflæði milli landanna sem allra fyrst. Þangað til reynum við að borða það sem til er í frystinum, ísskápnum og seljum flöskur en við ætlum þó ekki niður í Istedgade eða Skælbaksgade og selja eitthvað annað en flöskur!!
-
Þrátt fyrir kreppuna hefur nú ýmislegt gott á daga okkar drifið. Síðasta föstudag fórum við á leiksýningu hjá Láru Huld í Kulturhúsinu hér á bryggjunni. Hún var búin að vera að æfa leikrit alla daga vikunnar ásamt fleiri krökkum af leikskólunum í nágrenninu, afraksturinn var svo sýndur síðast liðinn föstudag.


Í gær var svo smá sprell hérna á bryggjunni, nánar tiltekið í götunni okkar. Það er verið að berjast fyrir því að fá kaffihús og e-ð fleira menningartengt hingað í götuna. Lára Huld smellti sér á hestbak... en Ásta Hlín vildi ekki sjá það!!!



Lára Huld skar út grasker í leikskólanum um daginn og við prófuðum að setja kerti inni í það áðan og kveikja á þeim - rosa flott :) Núna er nefnilega "Halloween" hér í Kaupmannahöfn, sem sést þá kannski helst í Tívolí - smellum okkur vonandi þangað fljótlega. Annars sendum við bara ykkur öllum okkar bestu kveðjur í þessari krepputíð, sem minnir mann óneitanlega á það að ekki er hægt að taka öllu sem sjálfsögðu í þessum heimi.

2. október 2008

.... 2 1/2 ári seinna

Litla stúlkan orðin aðeins stærri... en framburðurinn er ennþá dálítið skrýtinn :) Sá fær verðlaun sem þýðir textann rétt! Í verðlaun er gisting á hótel Helgu í Kaupmannahöfn...

29. september 2008

söngur fyrir svefninn

Það muna eflaust allir vel eftir þessu lagi, en kannski ekki í þessum flutningi :) Eins og heyrist á "framburði" dóttur minnar þá er hún rétt nýorðin þriggja (eða þliggja). Hún var með þetta lag á heilanum drjúgan part úr árinu 2006, en er sem betur fer löngu búin að gleyma því :) Langaði bara að henda þessu hér inn til gamans....
-

22. september 2008

Bekkjarmyndir

Þegar ég mætti í fyrsta tímann í taugasálfræði byrjaði kennarinn á því að segja að hann væri vanur að taka myndir af nemendum sínum... við héldum að þetta væri bara létt grín, þar sem það er nú ekki venjan að taka bekkjarmyndir hér í KU. En nei, nei,... í frímínútunum fóru allir út í garð, stilltu sér upp og gaurinn tók þessa líka fínu mynd af okkur :) Í næsta tíma áttum við að kjósa um hvaða mynd okkur þætti best, hann var búinn að prenta út fjórar mismunandi myndir sem allir áttu að kjósa um.... í þriðja tímanum fegnum við svo þessa dásamlegu mynd :)

15. september 2008

Torsdagsbar, matarboð og fleira skemmtilegt

Það er búið að vera nóg að gera hjá mér síðustu dagana, þó hef ég nú gefið mér góðan tíma til að slappa aðeins af inn á milli :) Á fimmtudaginn skellti ég mér á torsdagsbar í skólanum með Íslendingunum í sálfræðinni. Eitthvað var nú lítið af fólki fyrstu klukkutímana (enda mættum við klukkan 5.....). Hins vegar var alveg troðfullt hús og rífandi góð stemming þegar við yfirgáfum barinn um tvöleytið. Ég tók eitthvað af myndum en þær mistókust flest allar... líklega vegna lélegrar birtu :) Hins vegar tókust alveg tvær sem mér finnst nú nauðsynlegt að smella hér inn, enda eru þetta aðalpíurnar mínar - við höfum gengið saman í gegnum súrt og sætt síðan við byrjuð í KU - en þetta eru þær Hanna María og Auður - svaka píur :)
-

Stemmingin var kannski ekki alveg jafn góð daginn eftir og mættu menn misvel í föstudagstímann klukkan 10, en ég mætti þó og fór svo í vinnuna á eftir. Eitthvað er nú aldurinn farinn að segja til sín, því ég var steinsofnuð í sófanum klukkan hálftíu um kvöldið....
_
Á laugardeginum fórum við fjölskyldan í matarboð upp í Holte með Íslendingunum sem eru með Adda í landslagsarkítektúrnum..... alltaf að hitta e-a Íslendinga :) Það var mjög fínt, góður matur og skemmtilegt fólk þar á ferð. Það tók okkur svo ekki nema tvo klukkutíma að komast heim - rétt eins og við hefðum skroppið í matarboð frá Hvammstanga til Reykjavíkur! Ég sem stakk upp á því að við skyldum bara hjóla (það var reyndar áður en ég komst að því hvað þetta væri langt í burtu).
_
Í gær kíktum við svo í Þjóðminjasafnið hér í borg, ásamt Arnari Heimi, Auði og sonum. Það var mjög skemmtilegt og krakkarnir voru mjög glaðir, ég hugsa að við Addi förum aftur seinna - án barna :) Eftir það kíktum við aðeins í Tívolíið, þar var fullt af fólki og mjög góð stemming. Ég tók því miður engar myndir, hvorki í matarboðinu né í gær þannig að þið þurfið bara að ímynda ykkur hvernig þetta leit allt saman út.