29. maí 2007

Kaupmannahöfnin..

Hæ allir saman.. stalst inn á net hjá einhverjum hér í nágrenninu... vona að ég geti klárað að skrifa smá áður en það dettur út. Komum til Köben í gær, eftir brösulega ferð á Leifsstöð - ælandi barn, alltof sein innritun, 5 mín. í flug þegar við komumst loks í fríhöfnina og þá var bara hlaupið, það dundi í eyrunum... lokaútkall í flug til Kaupmannahafnar.... rosa gaman :)

Annars er Kaupmannahöfn dásamleg, veðrið frábært og við gengum bara um götur borgarinnar og skoðuðum hverfið okkar - sem er við fyrstu sýn alveg geggjað. Við setjum inn myndir við fyrsta tækifæri, eigum eftir að finna græjuna til að hlaða myndavélunum inn á tölvuna. Biðjum bara að heilsa í bili og verið nú dugleg að kommenta hjá mér... Helga

21. maí 2007

Eldur í Húnaþingi

Jæja, nú hefur Trausta mági mínum tekist að útbúa nýja og stórglæsilega heimasíðu fyrir unglistahátíðina Eld í Húnaþingi. Nýja slóðin er http://www.eldur.hunathing.is endilega kíkið á þetta... og svo þið sem verðið á Hvammstanga í sumar munið að leggja ykkar af mörkum því án ykkar væri þessi hátíð ekki til staðar!!!

17. maí 2007

flutningar og fleira

Skipulagshæfileikar mínir hafa komið í ljós síðustu daga. Ég las inni á heimasíðu Samskipa að við þyrftum að koma með kassana til þeirra daginn fyrir brottför, skipið fer á fimmtudegi þannig að við sáum það út að við þyrftum að mæta á miðvikudegi. Við leigðum okkur lokaða kerru hjá Shell og fylltum hana af dóti sem við keyrðum norður. Daginn eftir kláruðum við að pakka niður í kassana 30 sem við vorum búin að ákveða að senda með Samskipum. Allt í gríðarlegu skipulagi, klukkan eitt átti að byrja að setja kassana út í kerru, klæða stelpurnar.. og svo framvegis. Allt gekk eftir og svo ákvað ég að kíkja á netið og athuga hvert við þyrftum að fara með kassana.... þá les ég að við áttum að skila þeim í síðasta lagi þriðjudaginn fyrir brottför en ekki daginn fyrir brottför. Í gær var náttúrulega miðvikudagur en ekki þriðjudagur þannig að við vorum degi of seint á ferðinni... sem þýðir að dótið okkar verður ekki komið til Köben fyrr en 5. júní, viku seinna en við. Við höfum þá alla vega afsökun fyrir því að fara rosalega mikið út að borða og kaupa fullt af alls konar dóti :)

10. maí 2007

júró og kosningar


Það verður spennandi að sjá hvernig gengur í kvöld, vonandi rústum við þessu. Alltaf rígheldur maður í vonina um að vinna.. þó ekki væri nema bara að komast áfram í úrslitin. Það er eins með þetta og kosningarnar.. alltaf er maður jafn mikill kjáni að halda að fólkið í landinu sé búið að fá nóg af þessari blessuðu ríkisstjórn, en nei - það kýs þetta yfir sig aftur og aftur. Alltaf held ég þó í vonina, það hlýtur að koma að því að ég verði í vinningsliðinu. Ég spái því að þetta muni allt ganga þetta árið - það verða stjórnarskipti og við vinnum júró!! Ekki spurning..


7. maí 2007

bentu á þann sem þér þykir bestur

Nú styttist óðum í kosningar og þurfa menn að gera upp hug sinn fljótlega. Svona fyrir þá sem ekki geta ákveðið sig sjálfir bendi ég á þetta ... líka til gamans fyrir hina sem eru búnir að ákveða sig.


27. apríl 2007

spenningur

Spenningurinn er þvílíkur að ég held ég sé komin hálfa leið út í huganum. Nú barst okkur leigusamningur ásamt greiðsluseðli.. þurfum að punga út ansi góðri upphæð til að byrja með. Byrjum svo að leigja þann 1. maí, þannig að ef einhvern vantar húsnæði á besta stað í Köben frá 1. - 28. maí .. endilega hafið samband (þurfið reyndar að hafa með ykkur dýnu og svefnpoka). Mér áskotnaðist svo þessi mynd sem tekin er af svölunum úr blokkinni sem við munum búa í, við verðum reyndar ekki alveg svona hátt uppi. Það er verið að gróðursetja og helluleggja í garðinum og stefnt er að því að klára það fyrir okkar komu :) Á milli blokkanna má sjá Amager Fælled sem er risastór garður eða bara hálfgerð sveit..

21. apríl 2007

litla stelpan mín...

Í gær varð litla stelpan mín 4 ára! Set hér myndir af henni sem allar eru teknar í apríl (frá 2003-2007). Það lítur út fyrir að hún hafi eitthvað elst stúlkan, en þó ekki mikið breyst.

19. apríl 2007

komin með íbúð :)

Íbúðarmálin standa ansi vel núna... allt í einu vorum við komin með þrjár íbúðir. Erum nú búin að velja úr herlegheitunum og munum búa í Heklahúsunum á Íslandsbryggju. Við fáum íbúðina 1. maí og ég sagði Adda að ég væri bara farin.. enda er ég ekkert í skóla eða vinnu eða.. við myndum svo bara sjást í lok maí. Endilega kíkið á http://www.heklahusene.dk

13. apríl 2007

afmælis...




Uppáhalds besta systir mín á afmæli í dag. Snótin er orðin 23 ára og verður fallegri með hverjum deginum :) Til hamingju með afmælið elsku Gunnhildur mín!

11. apríl 2007

engar fréttir eru fréttir

Já, mér fannst nú tímabært að skrifa eitthvað hér á síðuna. Allt gott að frétta frá Hvanneyrinni, höfðum það notalegt um páskana og dóttirin sú eldri skemmti sér konunglega með pabba sínum í Danmörku. Við erum búin að fá tvö tilboð um íbúð í Köben, báðar eru þær í Heklahúsunum á Íslandsbryggju... þetta hljómar ekki eins og í útlöndum. Það eru víst fleiri en við sem fengu þessi tilboð þannig að við bíðum bara spennt eftir svari.

Smelli hér inn einni mynd af hryssunni minni henni Freyju

22. mars 2007

er betra að vera Dani en Íslendingur???

Þetta þykir mér mjög undarlegt... ég prófaði að athuga hvort það munaði einhverju í verði ef maður pantar flug á dönsku en íslensku. Fór fyrst á icealandexpress.is og pantaði flug fyrir okkur fjögur til Danmerkur og það kostaði 37.000 en svo fór ég á icelandexpress.dk og gerði nákvæmlega það sama (nema allt var á dönsku) og það kostaði 27.000!!! Hvað er málið?? Þannig að svarið við spurningunni að ofan hlýtur að vera já, nema maður sé rosa klár Íslendingur eins og ég hehe... Það verður alla vega ekki aftur snúið með Danmerkurför, búin að panta flug fyrir allt liðið. Við förum með stelpurnar 28. maí og svo koma strákarnir 6. júní.. eigum reyndar eftir að redda húsnæði þannig að ef einhver veit um lausa íbúð í Köben þá.....

14. mars 2007

skólavesen..

Nú er ég búin að hafa rúm tvö ár til að vinna í umsókn um framhaldsnámið í sálfræðinni, samt sem áður er ég að rembast við að klára umsóknina núna... þegar umsóknarfresturinn rennur út á morgun .... það er greinilega ekkert sem breytist, alltaf sama slórið í mér. Svo er bara að bíða spenntur eftir svari, það er óskandi að ég komist inn.

ps. er búin að setja inn myndir af yngri stúlkunni, linkur hér til hliðar fyrir þá sem vilja skoða.

6. mars 2007

nýjar myndir


Jæja, í tilefni nýliðinna mánaðarmóta setti ég inn myndir sem teknar voru í febrúar af frumburði mínum. Linkur inn á síðuna hennar er hérna til hliðar. Ég mun svo setja inn myndir hjá hinni stúlkunni á næstu dögum...

3. mars 2007

kóngsins Köben...

Á maður svo að þora að flytja þangað??? Vonandi að þessu verði öllu lokið þegar við flytjum í Danaveldi....

1. mars 2007

smá hugleiðing

Við Addi vorum að spá í hvað við þyrftum að hafa í tekjur til að geta búið í Reykjavík.... og verið til. Okkur brá ekkert lítið eftir smá reikning, við komumst að því að við þyrftum að hafa milli 450-500 þúsund á mann í mánaðartekjur!! Er ég algjör kjáni, eða er þetta það sem meðaljón hefur í tekjur á mánuði???

28. febrúar 2007