Kaupmannahöfnin..
Hæ allir saman.. stalst inn á net hjá einhverjum hér í nágrenninu... vona að ég geti klárað að skrifa smá áður en það dettur út. Komum til Köben í gær, eftir brösulega ferð á Leifsstöð - ælandi barn, alltof sein innritun, 5 mín. í flug þegar við komumst loks í fríhöfnina og þá var bara hlaupið, það dundi í eyrunum... lokaútkall í flug til Kaupmannahafnar.... rosa gaman :)
Annars er Kaupmannahöfn dásamleg, veðrið frábært og við gengum bara um götur borgarinnar og skoðuðum hverfið okkar - sem er við fyrstu sýn alveg geggjað. Við setjum inn myndir við fyrsta tækifæri, eigum eftir að finna græjuna til að hlaða myndavélunum inn á tölvuna. Biðjum bara að heilsa í bili og verið nú dugleg að kommenta hjá mér... Helga
5 ummæli:
Gaaaavööööööööööööööööööööööð
Nafnlaus mæ es..hehe, hlakka til að sjá ykkur :)
heldurðu að ég hafi ekki barasta fundið snuð í bílnum mínum... gangi ykkur annars bara vel að koma ykkur fyrir á bryggjunni ;)
Hlökkum sömuleiðis til að hitta ykkur Kristín!! Takk fyrir kveðjuna Pétur, nú hafið þið góða ástæðu til að kíkja í kaffi í Köben.. skila snuddunni :)
Bestu kv. frá Hvanneyri. Gaman að geta fylgst með ykkur;)
Skrifa ummæli