10. maí 2007

júró og kosningar


Það verður spennandi að sjá hvernig gengur í kvöld, vonandi rústum við þessu. Alltaf rígheldur maður í vonina um að vinna.. þó ekki væri nema bara að komast áfram í úrslitin. Það er eins með þetta og kosningarnar.. alltaf er maður jafn mikill kjáni að halda að fólkið í landinu sé búið að fá nóg af þessari blessuðu ríkisstjórn, en nei - það kýs þetta yfir sig aftur og aftur. Alltaf held ég þó í vonina, það hlýtur að koma að því að ég verði í vinningsliðinu. Ég spái því að þetta muni allt ganga þetta árið - það verða stjórnarskipti og við vinnum júró!! Ekki spurning..


1 ummæli:

Arnar Olafsson sagði...

Ég fer nú að efast um þína spásagnar hæfileika Helga mín, en maður verður nú samt að halda í vonina=)