17. maí 2007

flutningar og fleira

Skipulagshæfileikar mínir hafa komið í ljós síðustu daga. Ég las inni á heimasíðu Samskipa að við þyrftum að koma með kassana til þeirra daginn fyrir brottför, skipið fer á fimmtudegi þannig að við sáum það út að við þyrftum að mæta á miðvikudegi. Við leigðum okkur lokaða kerru hjá Shell og fylltum hana af dóti sem við keyrðum norður. Daginn eftir kláruðum við að pakka niður í kassana 30 sem við vorum búin að ákveða að senda með Samskipum. Allt í gríðarlegu skipulagi, klukkan eitt átti að byrja að setja kassana út í kerru, klæða stelpurnar.. og svo framvegis. Allt gekk eftir og svo ákvað ég að kíkja á netið og athuga hvert við þyrftum að fara með kassana.... þá les ég að við áttum að skila þeim í síðasta lagi þriðjudaginn fyrir brottför en ekki daginn fyrir brottför. Í gær var náttúrulega miðvikudagur en ekki þriðjudagur þannig að við vorum degi of seint á ferðinni... sem þýðir að dótið okkar verður ekki komið til Köben fyrr en 5. júní, viku seinna en við. Við höfum þá alla vega afsökun fyrir því að fara rosalega mikið út að borða og kaupa fullt af alls konar dóti :)

3 ummæli:

Gunnsutetrid sagði...

Æi en ömurlegt fyrir ykkur... Enn eins og þú segir þá hafið þið ástæðu til að fara mikið út að borða og kaupa ýmislegt, og það við vitum við báðar að það er mjög svo gaman :)
Vonandi koma ekki fleiri óvæntir, neikvæðir atburðir upp!
Hringdi í þig um daginn og ætlaði að spyrja hvenær ég mætti kíkja í heimsókn. Ætla að koma í byrjun júní ef það er í lagi og gista kannski eina nótt og koma svo næstsíðustu helgina í júní með Trausta! Heyrumst systir mín :)

Helga sagði...

komdu bara sem allra fyrst elskan mín! Við verðum að nota tímann vel þegar við búum loks í sama landinu :)

Nafnlaus sagði...

Já sæl... ég er að hugsa um að koma líka í byrjun júní til ykkar og gista eina nótt.... heheh neinei, ég verð víst ekki í sama landinu og þú... en EF ég kem til Danaveldis einhverntímann þá gisti ég hjá þér.. ójá og við getum rifjað uppp gamla tíma