15. september 2009

Anna Bergdís og nýja síðan

Hér er Anna Bergdís Arnarsdóttir, sem kom í heiminn með miklum látum þann 3. september síðast liðinn. Með tilkomu litlu stúlkunnar ákvað ég að opna nýja sameiginlega systkinasíðu inni á barnalandinu. Slóðin inn á hana er http://5systkini.barnaland.is Njótið vel :)
_

3. september 2009

30. ágúst 2009

Vuggestue

Ólíkt síðustu færslu verður þessi tileinkuð henni Ástu Hlín. Ekki nóg með það að Lára Huld hafi verið að hætta á sínum leikskóla og byrja á frístundaheimili og grunnskóla, þá er Ásta Hlín hætt á vöggustofunni og byrjar í leikskólanum á morgun. Eftir tveggja ára dvöl á deildinni sinni, Mánanum, þá fer hún yfir í "børnhave" - sem er reyndar bara í næsta húsi. Deildin hennar heitir Græsrødderne og þar eru helmingi fleiri börn en á vöggustofunni, ca. 25 börn og 4 fullorðnir. Við erum svo heppin að tveir starfsmenn og tvær stelpur af gömlu deildinni hennar Ástu Hlínar eru á þeirri nýju. Hér fyrir neðan eru myndir sem við tókum þegar Ásta Hlín byrjaði á vöggustofunni, teknar í ágúst 2007.


Hér eru svo myndir af skvísunni sem teknar voru í ágúst á þessu ári, síðustu dagana sem hún var á vöggustofunni. Á fyrstu tveim er hún á leiðinni í dýragarðinn, á næstu var verið að leita að brómberjum og á þeirri síðustu er hún með félaga sínum, honum Valdemar.


Við vonum svo að næsta færsla verði tileinkuð þriðju stelpunni minni.... sem við bíðum öll spennt eftir að láti sjá sig :)

18. ágúst 2009

Ísland og skólinn

Þessi færsla verður tileinkuð frumburði mínum, henni Láru Huld. Hún gerði sér lítið fyrir og skrapp ein til Íslands og var þar í tæpan mánuð. Það þótti henni ekki mikið mál, enda fullt af frábæru fólki þar sem var tilbúið að dekra við hana. Hér koma nokkrar myndir sem teknar voru í sveitinni.

Hér er Sigrún Elísabet komin í sveitina, þær frænkur brölluðu ýmislegt saman og höfðu gaman að hvorri annarri.


Lára Huld var líka svo heppin að fá að hitta frændsystkini sín frá Hnífsdal. Þau komu í sveitina til ömmu og afa og voru þar í nokkra daga. Reyndar komst Þórólfur ekki, en Lena, Bjarni Pétur og Anna Marý komu. Þau léku sér vel saman og eru ótrúlega myndarleg öll sömul :)

Svo byrjaði allt í einu litla barnið mitt í grunnskóla, ótrúlegt hvað tíminn líður... ég sem er alltaf jafn ung - skil þetta ekki alveg! Alla vega, hér fyrir ofan er mynd af skvísunni á fyrsta skóladeginum. Nýkomin í skólann, hjólandi auðvitað :) Þarna er svo skólastjórinn, sem var mjög hress, með "handabangsa" sem hann spjallaði mikið við... Skólinn hennar heitir Skolen på Islands Brygge og bekkurinn 0.x. Í honum er 25 krakkar og tveir kennarar, þetta lítur allt voða vel út og skottan er mjög spennt.

Hér fyrir ofan bíður stúlkan spennt eftir að hún verði kölluð upp á "pall", þar sem öllum krökkunum úr bekknum var safnað saman áður en farið var inn í stofu.

Hér er hún svo komin inn í kennslustofuna, þar sem beið hennar fullt af flottum bókum, sem hún getur ekki beðið eftir að fá að skrifa í ... Annars er allt gott að frétta, Ásta Hlín byrjar í "børnehave" um mánaðarmótin og litla krílið hefur það gott inni í bumbunni. Að lokum, mamma - ekki gleyma að kvitta :)

25. maí 2009

Frilandsmuseet

Við notuðum tækifærið á fimmtudaginn síðasta og fórum í smá ferð með stelpurnar okkar. Við kíktum í Frilandsmuseet uppi í Kongens Lyngby. Ég mæli eindregið með þessu safni, þetta var ótrúlega skemmtilegt - jafnt fyrir okkur gamla fólkið sem og stelpurnar. Á leiðinni kíktum við í grasagarðinn og þar sáu stelpurnar skjaldbökur, það fannst þeim mjög skemmtilegt. Fyrstu tvær myndirnar eru teknar þar, en allar hinar eru teknar í Frilandsmuseet. Þetta er eins konar risastórt Árbæjarsafn okkar Dana... með fullt af bóndabæjum, vindmyllum og vantsmyllum frá því í kringum 1600-1900. Njótið myndanna kæru vinir... og mamma ekki gleyma að kommenta!




Annars er allt rosalega gott að frétta héðan, veðrið og lífið leikur við okkur hér í Kaupmannahöfn. Ég var að klára praktíkina í síðustu viku, hún gekk bara vel og nú þarf ég bara að skila skýrslu um praktíkina. Því næst tekur lokaverkefnið við, það verður spennandi og vonandi tekst mér bara að gera sem allra mest áður en litla barnið lætur sjá sig í haust :)

30. apríl 2009

Afmælisbloggið

Þann 20. apríl síðast liðinn átti litla stelpan mín stórafmæli, orðin sex ára og byrjar bara í skóla í haust. Aldeilis spennandi tímar framundan, ég segi nú ekki annað. Við byrjuðum á því að halda eins konar "leikskólaafmæli" en þá komu allar stelpurnar á deildinni hennar hingað heim í fylgd leikskólakennaranna. Ferlega notalegt að sleppa alveg við að fá alla foreldrana með hehe... Stelpurnar byrjuðu á því að leika sér, svo var borðað, farið í pakkaleik og svo út að leika. Þetta gekk ótrúlega vel fyrir sig og var gaman fyrir Láru Huld að fá allar stelpurnar heim, svona áður en hún hættir í leikskólanum.

Á laugardaginn síðasta héldum við fjölskyldu/vina-afmælisbjóð heima hjá hinum foreldrunum. Á leiðinni rákumst við á þessar líka agalegu sætu gæsir, Ásta Hlín var alveg steinhissa :)


Í afmælinu var agalega ljúft og þangað komu margir góðir gestir. Á fyrstu myndinni eru krakkarnir í afmælinu, alla vega þeir sem voru mættir á slaginu og voru ekki sofandi þegar byrjað var að borða :) Á hinni myndinni er svo kærustuparið... já, ég á víst orðið tengdason! Þetta er Karl Jóhann og er hann með Láru Huld á leikskóla. Hafa þau verið perluvinir frá fyrstu kynnum og hefur vináttan verið að þróast í eitthvað alvarlegra undanfarið.... Það er reyndar gaman að segja frá því að þau hættu að vera kærustupar á smá tímabili, ég notaði þá tækifærið og spurði Láru Huld hvort það væri ekki betra að bíða þangað til hún yrði aðeins eldri með svona lagað. Jú, hún tók bara vel í það og sagði að kannski myndi hún bara finna einhvern þegar hún byrjaði í skólanum eða á frístundaheimilinu..... sem verður í ágúst!!! En í millitíðinni fóru ástarbréfin að berast á milli hennar og Karls Jóhanns og þau ákváðu bara að verða kærustupar aftur.... híhíhí


Eftir veisluna var hjólað heim á leið og þá kom í ljós að sú stutta var ansi þreytt eftir allt stuðið, steinsofnaði á hjólinu. Það hefur ekki gerst í ansi langan tíma og þótti okkur því ástæða til að smella einni mynd af stúlkunni :) Já, á meðan ég man þá þakka ég kærlega fyrir öll kommentin, það er dásamlegt að vita til þess að það er einhver sem kíkir ennþá inn á síðuna - og kommentar. Þó svo að mamma sé nú ekki enn búin að kommenta..... koma svo mútta tútta!!!

16. apríl 2009

Síðan síðast...

Jæja, ég hef tekið þá afdrifaríku ákvörðun að blása smá lífi í þetta blogg mitt. Það er ómögulegt að elskulegir ættingjar okkar og vinir geti ekki fylgst betur með okkur hérna í Köben... í myndum og máli. Það væri hins vegar dásamlegt ef fólk kommentaði þegar það leggur leið sína um síðuna svo ég fyllist miklum krafti og þrótti til að blogga hér alla vega oftar en tvisvar á ári.
-
Ætli það sé ekki best að byrja þar sem ég endaði síðast, eða í desember á síðasta ári. Við áttum hér dásamlegustu jól með öllum börnum okkar. Það var ótrúlega ljúft og skemmtilegt að hafa alla krakkana loksins hjá okkur, þau nutu þess í botn og voru voða sæl að hafa hvort annað. Fyrsta myndin hér að neðan er af þessum elskum á aðfangadagskvöld, eru þau ekki sæt? Næstu þrjár myndir eru teknar á Íslandi. Við skruppum þangað í janúar vegna þessa að Helga amma hans Adda dó og við vildum auðvitað hitta ættingjana á slíkum tímum.




Í febrúar kom svo öskudagur, eða Fastelavn eins og það heitir hér í Danmörku. Stelpurnar fóru náttúrulega klæddar upp í leikskólana sína, Lára Huld sem Þyrnirós en Ásta Hlín var ballerína. Þar var kötturinn sleginn úr tunnum og allir fengu nammi (popp og rúsínur) og skemmtu sér konunglega.

Í byrjun mars skelltum við hjónaleysin okkur í helgarferð til Rómar..... I love Róm... hvað get ég sagt? Þetta var frábær ferð í alla staði, 20 stiga hiti og sól allan tímann. Fínt gistiheimili á frábærum stað, löbbuðum um allt, átum pizzur, pasta og ítalskan ís.... Addi drakk hágæða kaffi og hvítvín en ég var meira í kókinu :) Hefði nú alveg verið til í ískalt hvítvínsglas... en kannski næst. Já, best að segja .... takk Þórdís og Jón fyrir pössunina, þið eigið inni STÓRAN greiða!!



Tómas og Óli afi komu svo um páskana, hlaðnir íslensku lambakjöti, páskaeggjum og öli... það var dásamlegt að hafa þá. Veðrið var frábært, 15 stiga hiti og sól allan tímann. Við bara slökuðum á heima, fórum í göngutúra á bryggjuna, kíktum í bæinn og átum súkkulaði og höfðum það kósý. Hér höfum við svo nokkrar myndir af hjólasnillingunum, fyrst Tómas sem gerir alls konar kúnstir á hjólinu eins og ekkert sé sjálfsagðara. Svo kemur Lára Huld í nýja bleika Sollu stirðu gallanum sem hún fékk í fyrirfram 6 ára afmælisgjöf frá Óla afa. Þriðja myndin er af afanum sjálfum, en hann fékk að prófa hjólið mitt og hjólaði eins og hann hefði ekki gert neitt annað síðast liðin ár :) Síðasta myndin er svo tekin á bryggjunni.




Svo ætla ég að kynna nýjasta fjölskyldumeðliminn til sögunnar, sem hefur það ansi gott inni í bumbunni minni og ætlar að vera þar til 28. ágúst... Við fórum í sónar í gær og allt leit rosalega vel út og við vorum mjög glöð og þakklát fyrir það. Það reyndist frekar erfitt fyrir ljósmóðurina að finna út hvort þetta væri stúlka eða drengur, en eftir þrjár tilraunir þá fannst henni sem hún sæji eitthvað... eitthvað sem benti til þess að þetta væri.... STÚLKA :)



Já, þar hafið þið það og endilega verið dugleg að kommenta - það er svo miklu skemmtilegra... og þá á ég líka við þig mamma!!