18. ágúst 2009

Ísland og skólinn

Þessi færsla verður tileinkuð frumburði mínum, henni Láru Huld. Hún gerði sér lítið fyrir og skrapp ein til Íslands og var þar í tæpan mánuð. Það þótti henni ekki mikið mál, enda fullt af frábæru fólki þar sem var tilbúið að dekra við hana. Hér koma nokkrar myndir sem teknar voru í sveitinni.

Hér er Sigrún Elísabet komin í sveitina, þær frænkur brölluðu ýmislegt saman og höfðu gaman að hvorri annarri.


Lára Huld var líka svo heppin að fá að hitta frændsystkini sín frá Hnífsdal. Þau komu í sveitina til ömmu og afa og voru þar í nokkra daga. Reyndar komst Þórólfur ekki, en Lena, Bjarni Pétur og Anna Marý komu. Þau léku sér vel saman og eru ótrúlega myndarleg öll sömul :)

Svo byrjaði allt í einu litla barnið mitt í grunnskóla, ótrúlegt hvað tíminn líður... ég sem er alltaf jafn ung - skil þetta ekki alveg! Alla vega, hér fyrir ofan er mynd af skvísunni á fyrsta skóladeginum. Nýkomin í skólann, hjólandi auðvitað :) Þarna er svo skólastjórinn, sem var mjög hress, með "handabangsa" sem hann spjallaði mikið við... Skólinn hennar heitir Skolen på Islands Brygge og bekkurinn 0.x. Í honum er 25 krakkar og tveir kennarar, þetta lítur allt voða vel út og skottan er mjög spennt.

Hér fyrir ofan bíður stúlkan spennt eftir að hún verði kölluð upp á "pall", þar sem öllum krökkunum úr bekknum var safnað saman áður en farið var inn í stofu.

Hér er hún svo komin inn í kennslustofuna, þar sem beið hennar fullt af flottum bókum, sem hún getur ekki beðið eftir að fá að skrifa í ... Annars er allt gott að frétta, Ásta Hlín byrjar í "børnehave" um mánaðarmótin og litla krílið hefur það gott inni í bumbunni. Að lokum, mamma - ekki gleyma að kvitta :)

3 ummæli:

Gunnsutetrid sagði...

Tíminn líður ansi hratt... það er ekki hægt að segja annað. Stúlkan tekur sig vel út sem skólastelpa og verður eflaust mjög dugleg. Ég var að skrifa þér til baka á minni síðu :) En takk fyrir bloggið :)

Nafnlaus sagði...

Kvitt,kvitt, mamma.

Helga sagði...

Takk elsku mamma, nú skal ég hætta að bögga þig :)