Jæja, ég hef tekið þá afdrifaríku ákvörðun að blása smá lífi í þetta blogg mitt. Það er ómögulegt að elskulegir ættingjar okkar og vinir geti ekki fylgst betur með okkur hérna í Köben... í myndum og máli. Það væri hins vegar dásamlegt ef fólk kommentaði þegar það leggur leið sína um síðuna svo ég fyllist miklum krafti og þrótti til að blogga hér alla vega oftar en tvisvar á ári.
-
Ætli það sé ekki best að byrja þar sem ég endaði síðast, eða í desember á síðasta ári. Við áttum hér dásamlegustu jól með öllum börnum okkar. Það var ótrúlega ljúft og skemmtilegt að hafa alla krakkana loksins hjá okkur, þau nutu þess í botn og voru voða sæl að hafa hvort annað. Fyrsta myndin hér að neðan er af þessum elskum á aðfangadagskvöld, eru þau ekki sæt? Næstu þrjár myndir eru teknar á Íslandi. Við skruppum þangað í janúar vegna þessa að Helga amma hans Adda dó og við vildum auðvitað hitta ættingjana á slíkum tímum.




Í febrúar kom svo öskudagur, eða Fastelavn eins og það heitir hér í Danmörku. Stelpurnar fóru náttúrulega klæddar upp í leikskólana sína, Lára Huld sem Þyrnirós en Ásta Hlín var ballerína. Þar var kötturinn sleginn úr tunnum og allir fengu nammi (popp og rúsínur) og skemmtu sér konunglega.
Í byrjun mars skelltum við hjónaleysin okkur í helgarferð til Rómar..... I love Róm... hvað get ég sagt? Þetta var frábær ferð í alla staði, 20 stiga hiti og sól allan tímann. Fínt gistiheimili á frábærum stað, löbbuðum um allt, átum pizzur, pasta og ítalskan ís.... Addi drakk hágæða kaffi og hvítvín en ég var meira í kókinu :) Hefði nú alveg verið til í ískalt hvítvínsglas... en kannski næst. Já, best að segja .... takk Þórdís og Jón fyrir pössunina, þið eigið inni STÓRAN greiða!!




Tómas og Óli afi komu svo um páskana, hlaðnir íslensku lambakjöti, páskaeggjum og öli... það var dásamlegt að hafa þá. Veðrið var frábært, 15 stiga hiti og sól allan tímann. Við bara slökuðum á heima, fórum í göngutúra á bryggjuna, kíktum í bæinn og átum súkkulaði og höfðum það kósý. Hér höfum við svo nokkrar myndir af hjólasnillingunum, fyrst Tómas sem gerir alls konar kúnstir á hjólinu eins og ekkert sé sjálfsagðara. Svo kemur Lára Huld í nýja bleika Sollu stirðu gallanum sem hún fékk í fyrirfram 6 ára afmælisgjöf frá Óla afa. Þriðja myndin er af afanum sjálfum, en hann fékk að prófa hjólið mitt og hjólaði eins og hann hefði ekki gert neitt annað síðast liðin ár :) Síðasta myndin er svo tekin á bryggjunni.




Svo ætla ég að kynna nýjasta fjölskyldumeðliminn til sögunnar, sem hefur það ansi gott inni í bumbunni minni og ætlar að vera þar til 28. ágúst... Við fórum í sónar í gær og allt leit rosalega vel út og við vorum mjög glöð og þakklát fyrir það. Það reyndist frekar erfitt fyrir ljósmóðurina að finna út hvort þetta væri stúlka eða drengur, en eftir þrjár tilraunir þá fannst henni sem hún sæji eitthvað... eitthvað sem benti til þess að þetta væri.... STÚLKA :)

Já, þar hafið þið það og endilega verið dugleg að kommenta - það er svo miklu skemmtilegra... og þá á ég líka við þig mamma!!